Fræðslan kemur í kjölfarið á níði sem hópur stuðningsmanna hafði uppi í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum í gær. Í myndbandinu sést og heyrist í stuðningsmönnum ÍR þar sem þeir kyrja „Það eru hommar í KR.“
Var myndbandið tekið skömmu fyrir fjórða úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Dominosdeild karla í körfubolta sem fór fram í Seljaskóla í gærkvöldi.
Í færslu Ghetto Hooligans á Twitter í dag biðjast þeir innilega afsökunar á þessum söngvum. Vísað er í yfirlýsingu sem birt var á Twitter í gærkvöldi þar sem kom fram að söngvarnir endurspegli á engan hátt gildi Ghetto Hooligans og að þeir séu til þess fallnir að ala á fordómum og jaðarsetningu hópa í samfélaginu.
Yfirlýsing#dominos365#korfuboltipic.twitter.com/tDH2mQ5lNhÞá segir í færslunni í dag að fulltrúar Ghetto Hooligans hafi í dag verið í sambandi við Samtökin ´78 með það að markmiði að læra sem mest af þessum mistökum.
— GhettoHooligans (@HooligansGhetto) May 3, 2019
„Við fögnum því viðmóti sem birtist okkur þar og erum mjög ánægðir með það að fræðslufulltrúi samtakanna hefur þegið boð okkar um að heimsækja hópinn í upphitun okkar fyrir oddaleikinn í úrslitunum á laugardag og vera með fræðsluerindi.
Við ítrekum afsökunarbeiðni okkar og heitum því að vinna gegn niðurrifi og fordómum innan okkar raða,“ segir á Twitter.
Samtökin ´78 segja í færslu á Facebook-síðu sinni að þau fagni því að stuðningsfélagið axli ábyrgð á gjörðum sínum og að þau hlakki til að vinna með félaginu.
„Við munum hitta þau fyrir leik á morgun til að ræða málin og fræða þau um hinseginleikann og mikilvægi þess að öll upplifum við okkur velkomin innan íþróttafélaga,“ segir í færslu samtakanna.