Lífið

Vorspá Siggu Kling – Tvíburarnir: Hefur svo smitandi gleðiorku

Sigga Kling skrifar
Elsku Tvíburinn minn, það er svo sannarlega mikið að gerast í kortunum þínum, þú færð skýr skilaboð um velgengni, þú vekur athygli og það verða margir sem stóla á þig, en þú þarft bara að anda að þér pínulitlu kæruleysi til að sjá að þú hefur sungið sigurlagið í lífsins Eurovision.

Þú færð þínu framgengt og það verður þér og þínum nánustu til hins góða, því þú hefur svo smitandi gleðiorku og þegar þér líður vel og tekur lífinu með þínum geislandi húmor þá smitarðu alla í kring hvert sem þú ferð.

Þú ert bara að sjá eins og smá hluta af þeim ótrúlega mögnuðu atburðum sem skreyta þinn veg næstu mánuði, en þú þú þarft alls ekki að sjá allan veginn til að hefja ferðina, því þú getur ekki haft allt gulltryggt og séð fyrir endann á öllu því þá tekurðu aldrei áhættu og ferð aldrei neitt.

Núna verður þú svo sannarlega í essinu þínu, það þarf að vera já, ekkert mál og þó þú sjáir það ekki núna í augnablikinu hvernig þú ætlir að leysa úr málunum, þá gerirðu það það er eins og hendi sé veifað leiftursnöggt og þó þér finnist enginn möguleiki þá finnurðu 100 leiðir því ótrúlegustu flækjur leysast og sannleikurinn kemur í ljós, þinn sannleikur.

Í ástinni eru miklir töfrar í gangi sem geta lokað vondu ástarsambandi eða byrjað gott ástarsamband og ástin verður eitthvað svo mikilvæg og þú átt eftir að geta deilt þinni innri manneskju og treyst þeim sem þú elskar. Ástin getur verið bæði auðveld og erfið því hún er óútreiknanleg og engu lík og þegar þú ert ástfangin þá veistu það, það er ekkert kannski til í þínum huga.

Þú hefur verið á vissum endalokum undanfarið og skynjar vissar breytingar hjá þér og ert að fara inn á besta tímabil ársins, en passaðu þig að vera ekki farþegi í þessu ferðalagi heldur vertu sjálfur við stjórn og undir stýri.

Knús og kossar, Sigga Kling.



Tvíburar 21. maí - 21. júní

Örn Árnason leikari, 19, júní

Össur Skarphéðinsson húmoristi, 19. júní

Páll Magnússon þingmaður , 17. júní

Kjartan Atli Kjartansson fjölmiðlamaður, 23. maí

Heimir Hallgrímsson knattspyrnuþjálfari, 10. júní

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, 14. júní

Bjartmar Guðlaugsson, söngvari og snillingur, 13. júní

Dagur B. Eggertsson, 19. júní

Jóhann Kristófer Stefánsson, tónlistarmaður 12. júní

Aníta Briem, leikkona, 29. maí

Ingó Veðurguð, tónlistarmaður, 31. maí

Joan Rivers, leikkona, 8. júní

Marilyn Monroe, 1. júní

Selma Björnsdóttir, 13. júní

Sunna Rannveig Davíðsdóttir, bardagakona, 21. júní






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.