Lífið

Vorspá Siggu Kling – Vogin: Þú ert hvatvís, hugmyndarík og með sama eðli og Porsche

Sigga Kling skrifar
Elsku Vogin mín, það er eins og þú sért allstaðar, fólk hittir þig á óvanlegaustu stöðum og þú kemur sjálfri þér á óvart hversu vel þú tæklar hlutina. Fólk virðist vera að óska þér til hamingju hægri vinstri svo segðu bara já takk og haltu áfram þinni leið. Það fer þér alltaf best að vera „Doer“ því þú ert hvatvís, hugmyndarík og með sama eðli og Porsche, alltaf flottur en samt gerður til þess að hraðar en löglegt er eða má. En stundum þurfum við að beygja reglurnar, berjast áfram með þeirri tækni ses okkur býðst, gefa í og finna í blóðinu og í hjartanu að við tökum þessa spyrnu.

Láttu ekki gömul leiðindi hanga á þér því þá ertu farin að úldna því það er vond lykt af gömlum leiðindum en þau gerðu þig svo sannarlega að þeirri merkilegu manneskju sem þú ert í dag svo við segjum bara takk fyrir og bæ bæ og nýjar tilfinningar taka völdin, þær sem þú þarft á að halda og virkilega vilt hafa.

Þér finnst svo gaman að segja sögur og því dramatískari því betri hugsar þú, svo skilaboðin eru, segðu nei við dramatískum sögum, sérstaklega ef slúður er megin inngangurinn í þeim, því þú ert alltaf skemmtileg, alveg sama hvað þú segir, þá hlustum við öll á með aðdáun.

Ekki hafa móral yfir því að þér finnist þú hafir fengið eitthvað of auðveldlega eða eigir ekki þetta eða hitt skilið, þá segi ég nei þú átt svo sannarlega skilið þá hluti sem eru að koma til þín í næsta mánuði. Þeir munu breyta og byggja upp kraftinn hjá þér og efla þig til góðra hluta, svo taktu höfuðið úr sandinum því þú ert ekki strútur. Þú yrðir svo frábær stríðsmaður, en lífið er ekki stríð heldur óvæntir atburðir, tilviljanir sem eru ekki tilviljanir sem skapa þetta óvænta ævintýri sem er líf. Þú verður svo framúrskarandi vel tengd himintunglunum á þessu sumri að þú gætir hugsað eitthvað sem þú vilt og það gerist innan sólarhrings.

Knús og kossar, Sigga Kling.



Vog 23. september - 22. október

Kári Árnason, landsliðsmaður í fótbolta, 13. október

Hjörvar Hafliðason, fjölmiðlamaður, 6. október

Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, 11. október

Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnmálamaður, 12. október

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, 4. október

Ragga Gísla, tónlistarmaður, 7. október

Steinn Steinarr, skáld, 13. október

Margret Thatcher, 13. október

Fanney Birna Jónsdóttir, fjölmiðlakona, 21. október

Friðrik Dór, tónlistarmaður, 7. október

JóiPé, tónlistarmaður, 2. október

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttaþulur, 19. október

Kim Kardashian, raunveruleikastjarna, 21. október






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.