Lífið

Vorspá Siggu Kling – Meyjan: Þú sérð einföldu hlutina í öðru ljósi

Sigga Kling skrifar
Elsku myndarlega og heillandi Meyjan mín, þú átt eftir að komast upp með allt sem þú tekur þér fyrir hendur í sumar og verður með stjörnur í augunum og sjálfsmyndin byggist upp og verður betri með hverjum mánuði sem líður, bæði í sambandi við karakter og starfsframa. Það eina sem þú þarft að hugsa er að allt sem þú ætlar að gera og framkvæma þarftu að gera sjálf. Númer eitt, tvö og þrjú ert það þú sem munt bera hitann og þungann af því sem gerist á næstu mánuðum og koma í mark í lífsmaraþoninu þínu með ljós á öllum kyndlunum.

Þú þarft að vera á tánum yfir því sem þú vilt að gerist og til hamingju elskan mín, þú færð það! En eins sterk og þú ert þá er oft stuttur í þér þráðurinnn og þú átt erfitt með að umbera leiðindi því þú ert viðkvæmari en þú heldur.

Hlýja og friður fæðist með sumrinu og keppnisskapið verður 100%, en ef orkuleysi er að deyfa andann þinn og hindra lífið þá þarftu að rannsaka það í smáatriðum hversvegna þessi orkuskortur er því þú getur bætt úr þessu öllu saman og ef þú leitar muntu finna, það er svarið við spurningu þinni.

Þú sérð einföldu hlutina í öðru ljósi og finnur svo sannarlega að þetta er sumarið þitt. Þú ert búin að ná miklum árangri undanfarið, þarft bara að læra að dvelja í því að vera ánægður með sjálfan þig og klappa þér á bakið fyrir þeim framförum sem nú þegar er náð.

Það er svo margt sem þig langar að gera en þú þolir ekki endurtekningar svo það er undir þér komið að bæta inn einhverju nýju ef þú hefur einskæran áhuga á því, vegna þess að þú ert akkúrat undir orkunni að það mun takast.

Þú átt eftir að vaxa og verða sterkari með hverjum degi sem líður og það verður umbylting á þínum tilfinningum. Júpíter svífur yfir vötnum, skrifar inn heppni og fjárhagslegan ávinning sem þú ættir að nota til að dekra við þig elsku hjartað mitt því það er svo mikilvægt að láta sér líða vel í ástinni, og þú ert í fyrsta sæti.

Knús og kossar, Sigga Kling.

Meyja 23. ágúst - 22. september

Manuela Ósk fyrirsæta, 29. ágúst

Edda Björgvinsdóttir leikkona, 13. september

Beyoncé Knowles söngkona, 4. september

Gylfi Þór Sigurðsson, fótboltamaður, 8. september

Eiður Smári Guðjohnsen, fótboltamaður, 15. september

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, 7. september

Annie Mist crossfittari, 18. september

Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, 29. ágúst

Sema Erla Serdar, baráttukona, 4. september

Raggi Bjarna, söngvari, 22. september

Skúli Mogensen, athafnamaður, 18. september

Ari Eldjárn, grínisti, 5. september

Sara Sigmundsdóttir, Crossfit-stjarna, 12. september

Elín Margrét Böðvarsdóttir, fréttakona, 27. ágúst






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.