Lífið

Reynir að synda í sundlaug fullri af hlaupi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mark Rober er mjög vinsæll á YouTube.
Mark Rober er mjög vinsæll á YouTube.
Verkfræðingurinn Mark Rober hefur getið sér gott orð á Youtube fyrir fjölmörg skemmtileg myndbönd þar sem hann hannar ótrúlegustu hluti.

Í nýjasta myndbandinu athugar hann hvort hægt sé að synda í sundlaug fullri af hlaupi. Alls kom hann fyrir 15 tonnum af hlaupi í lauginni og reyni að athafna sig ofan í lauginni.

Rober  vann áður hjá NASA og hannaði búnað sem er um borð í Curiosity, vélmenni NASA á Mars og er því mikill vísindamaður.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst hjá þessum magnaða manni en þegar þessi grein er skrifuð hefur verið horft á myndbandið yfir 13 milljón sinnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.