Lífið

Sumarspá Siggu Kling – Tvíburarnir: Ástin færir þér mikið þegar þú hleypir henni að

Sigga Kling skrifar
Elsku Tvíburinn minn, þú ert að stíga inn í næsta mánuð sem er svo merkilegur því hann gefur þér tækifæri til að njóta þín, þú færð þínu framgengt með lipurð og lyftir anda þínum á hærri tíðni. Þú ert svo mikið sumar að það er eins og kátínu og spennu sé sprautað beint í æðar þínar.

Þú tekur ákvarðanir eins og vindurinn og ekkert fær þig stöðvað að færa þig úr einum stað yfir á annan. Þú átt eftir að renna niður glæfralegustu brekkurnar eins og ekkert sé og fólk verður hissa í kringum þig og skilur ekkert í hvað er að gerast.

Þú ert svo mikill snillingur í því að vera öðruvísi en aðrir og hrista þig útúr stöðluðum römmum annarra; Litlir kassar á Lækjarbakka, litlir kassar og allir eins var svo sannarlega ekki samið um þig. Að sjálfsögðu hefur þú upplifað erfiða tíma og verið niðurnjörfaður, þessvegna nýturðu þess enn betur að geta komið og farið að vild. Þú átt eftir að taka ákvörðun um eitthvað mikilvægt og ekkert í veröldinni mun stöðva þig, þú lítur á lífið eins og risastóran söngleik þar sem þú ert leikstjórinn.

Ástin færir þér mikið þegar þú hleypir henni að og ef við viljum að lífið sé skemmtilegt þá náum við okkur í Tvíbura og þó að allt virðist óskipulagt hjá þér, þá verður útkoma þín svo einstök að allir verða undrandi.

Gríptu daginn, Carpe Diem, og lifðu hann eins og hann væri þinn síðasti, því þú skilur það oft ekki þú ert fæddur til að lifa góðu lífi og það er stundum liðið svolítið langt á ævi þína áður en þú skilur þá staðreynd. Svo það hentar þér ekki að læra eða að vinna við eitthvað „praktískt“ eins og til dæmis viðskiptafræði því það þarf að vera lifandi og litríkt til þess að þú njótir þín og blómstrir.

Kossar og knús, Sigga Kling.

Tvíburar 21. maí - 21. júní

Örn Árnason leikari, 19, júní 

Össur Skarphéðinsson húmoristi, 19. júní 

Páll Magnússon þingmaður , 17. júní 

Kjartan Atli Kjartansson fjölmiðlamaður, 23. maí 

Heimir Hallgrímsson knattspyrnuþjálfari, 10. júní 

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, 14. júní 

Bjartmar Guðlaugsson, söngvari og snillingur, 13. júní 

Dagur B. Eggertsson, 19. júní 

Jóhann Kristófer Stefánsson, tónlistarmaður 12. júní 

Aníta Briem, leikkona, 29. maí 

Ingó Veðurguð, tónlistarmaður, 31. maí 

Joan Rivers, leikkona, 8. júní 

Marilyn Monroe, 1. júní 

Selma Björnsdóttir, 13. júní 

Sunna Rannveig Davíðsdóttir, bardagakona, 21. júní






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.