Fótbolti

Sjáðu þjálfara Albana detta með látum eftir blaðamannafund

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hinn 73 ára gamli Reja er harður af sér.
Hinn 73 ára gamli Reja er harður af sér. vísir/getty
Fall er vonandi ekki fararheill hjá landsliðsþjálfara Albaníu, Edoardo Reja, sem datt mjög illa eftir blaðamannafund á dögunum.

Reja var þá nýbúinn að tilkynna landsliðshóp sinn fyrir leikinn gegn Íslandi en leikur liðanna fer fram á Laugardalsvelli á laugardag.

Reja tók við liðinu í lok apríl og er augljóslega ekki orðinn vanur aðstæðum hjá albanska sambandinu því hann gætti ekki að sér og féll með miklum látum.

Hann meiddist þó ekki og gantaðist um málið við fjölmiðlamenn á eftir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×