Helgi: Vorum komnir alltof snemma í frí Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júní 2019 22:04 Helgi og félagar eru í 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar. vísir/andri marinó
Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, var ánægður með sigurinn á HK í Kórnum í kvöld. Árbæingar lentu undir í fyrri hálfleik en skoruðu tvö mörk undir lok leiksins og tryggðu sér stigin þrjú. „Við breyttum yfir í 3-5-2 eftir um klukkutíma. Það leikkerfi hefur gefið góða raun og einhverra hluta vegna verðum við ákveðnari í því. Og sem betur fer náðum við að jafna og skora sigurmarkið,“ sagði Helgi eftir leik. „Þetta voru tveir ólíkir hálfleikar. Við vorum afar slakir í fyrri hálfleik og langt frá okkar besta. Í hálfleik talaði ég um að við værum komnir alltof snemma í frí og yrðum að klára þennan leik. Mínir menn gerðu það sem til þurfti til að vinna. Þetta var ekki okkar besti leikur en þeim mun meiri karakter í þessu.“ Fyrir leikinn í kvöld höfðu Fylkismenn ekki unnið í fimm deildarleikjum í röð. „Það fer eftir því hvernig litið er á það,“ sagði Helgi um rýra uppskeru síðustu vikna. „Ef menn telja stig á móti FH og KR lélegt er þetta ekki að ganga. Við teljum þessi stig góð en við þurfum að vinna í kringum jafnteflin og það kom í dag. Einn þriðji af mótinu er búinn og við erum þokkalega sáttir en vitum að við eigum meira inni.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Sjá meira