Lífið

Segist hafa orðið fyrir aðkasti vegna kynvitundar sinnar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Jonathan Van Ness segist alltaf hafa upplifað sig utan tvíhyggju kynjakerfisins, hann hafi aftur á móti ekki þekkt hugtökin fyrr en nú.
Jonathan Van Ness segist alltaf hafa upplifað sig utan tvíhyggju kynjakerfisins, hann hafi aftur á móti ekki þekkt hugtökin fyrr en nú. Vísir/getty
Jonathan Van Ness, sem er einn af fimm umsjónarmönnum raunveruleikaþáttarins Queer Eye for the Straight Guy, skilgreinir sjálfan sig utan tvíhyggju kynjakerfisins. Jonathan segist hafa upplifað mikla skömm fyrir kynvitund sína í æsku.

„Eftir því sem ég verð eldri því sannfærðari er ég um að ég sé kynsegin. Ég upplifi mig utan tvíhyggju kynjakerfisins. Suma daga líður mér meira eins og karlmanni en aðra eins og konu. Ég held að orkan mín sé bara út um allt,“ sagði Jonathan sem bætti við:

„Ég stekk á öll tækifæri sem ég fæ til að mölva staðalímyndir tvíhyggjunnar. Ég er alltaf til í það. Kyn er, að mér finnst, oft notað til þess að aðgreina og sundra. Þetta eru félagslegir kassar sem mér finnst ég bara ekki passa inn í,“ sagði Jonathan.

Jonathan rifjar upp barnæsku sína og minnist þess að hafa oft naglalakkað sig, gengið í háum hælum og notað hálsklúta en þó oftast á laun því hann varð alltaf fyrir aðkasti.

„Ég var mjög meðvitaður um að ég mætti bara leika mér með þessa hluti fyrir sólarupprás, niður í kjallara og ég mætti alls ekki ganga í þessum fötum í skólanum. Ég lék mér bara með þessa hluti bak við luktar dyr,“ útskýrði Jonathan.

Netflix þættirnir Queer Eye for the Straight guy hafa notið mikilla vinsælda.Vísir/getty
Þegar Jonathan var spurður hvort hann hefði „uppgötvað“ kvenlegu hliðar sínar seint á lífsleiðinni sagði hann að það væri af og frá. Hann hefði alltaf upplifað sig utan tvíhyggju kynjakerfisins en hafði bara ekki haft hugtökin til að útskýra kynvitund sína.

„Ég vissi bara ekki hvaða nafni þetta kallaðist. Ég hef klæðst háum hælum, málað mig og gengið í pilsi í þó nokkurn tíma, elskan. Ég vissi bara ekki hvað það þýddi, að það væri til hugtak yfir það.“

Jonathan er sem fyrr segir einn af fimm umsjónarmönnum raunveruleikaþáttanna vinsælu sem eru sýndir á Netflix-streymisveitunni. Teymið, sem kallar sig gjarnan „fimm fræknu“, hjálpar fólki að takast á við lífið og reynir að efla sjálftstraust þeirra. Antoni Porowski, Tan France, Karamo Brown og Bobby Berk vinna með Jonathan.


Tengdar fréttir

Innlit á heimili Bobby Berk úr Queer Eye

Í þáttunum vinsælu Queer Eye er fylgst með þeim Antoni, Bobby, Jonathan, Karomo og Tan sem aðstoða fólk að breyta lífstíl sínum og fær fólkið nýinnréttað heimili og glænýjan fataskáp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.