Segir viðbrögð tyrknesku leikmannanna við öryggisleit í Keflavík stórlega ýkt
Sögðu landsliðsmennirnir að þetta væri óásættanlegt og var utanríkisráðherra Tyrkja þeim sammála.
Hefur Víðir rætt við fulltrúa tyrkneska knattspyrnusambandsins sem tjáðu honum að rétt rúmar tvær klukkustundir hefðu liðið frá því vél tyrkneska landsliðsins lenti á Keflavíkurflugvelli og þar til liðið var komið á hótel í Reykjavík.
Segir Víðir að rétt rúmur klukkutími hafi liðið frá því liðið fór úr flugvélinni og þar til það var komið upp í rútuna sem flutti það til Reykjavíkur.
Þegar íslenska liðið lék gegn því tyrkneska í Tyrklandi fyrir um tveimur árum biðu sömu móttökur þegar íslenska liðið sneri aftur heim til Íslands. Er það vegna þess að flugvöllurinn í tyrknesku borginni er ekki vottaður af alþjóðlegum flugmálayfirvöldum og þurfa því farþegar sem koma þaðan, að sögn Víðis, að fara í gegnum ítarlegri öryggisleit og vegabréfaeftirlit.
„Þegar við komum heim frá Tyrklandi þá fórum við í gegnum öryggisleit og vegabréfaeftirlit. Sennilega nákvæmlega eins og þeir. Eftir því sem ég best veit virðist þetta ekki hafa verið óeðlilegt,“ segir Víði.
Stuðningsmenn tyrkneska landsliðsins hafa brugðist ókvæða við vegna þessarar framkomu í garð leikmanna, sér í lag vegna þess að óþekktur maður ákvað að blanda sér í hóp fjölmiðlamanna og rétt þvottabursta í andlit fyrirliða liðsins, Emre Belözoğlu.
Hafa tyrknesku stuðningsmennirnir herjað á íslenska íþróttafréttamenn því stuðningsmennirnir héldu að þeir bæru ábyrgð á þvottaburstaatvikinu.
Víðir segir þessi viðbrögð stuðningsmanna tyrkneska landsliðsins afar skrýtin en kalli þó ekki á aukna gæslu á Laugardalsvelli þegar leikur liðanna fer fram á morgun.
„Við höfum ekki tekið ákvörðun um neitt svoleiðis. Við erum bara með venjulegum undirbúning eins og er allavega og erum að fara að hitta fulltrúa tyrkneska sambandsins til að fara yfir málin á eftir sem er hefðbundið daginn fyrir leik og höfum ekki fengið sérstakar óskir frá þeim.“
Víðir segir 200 tyrkneska stuðningsmenn væntanlega á leikinn, sem sé svipaður fjöldi og þegar tyrkneska liðið lék síðast á Laugardalsvelli. Víðir segir 140 gæslumenn, úr björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu, standa vaktina á Laugardalsvelli sem sé sami fjöldi og þegar íslenska liðið lék gegn því albanska á laugardag.
Tengdar fréttir
Utanríkisráðherra Tyrkja ósáttur við meðferð á tyrknesku leikmönnunum á Keflavíkurflugvelli
Tyrknesku leikmennirnir þurftu að bíða í þrjá tíma við vegabréfaeftirlit og segjast hafa þurft að undirgangasta óþarflega ítarlega leit.
Minnti á að íslenska liðið hefði þurft að bíða lengi á flugvellinum í Konya
Landsliðsfyrirliðinn og -þjálfarinn vildu lítið um burstamálið svokallaða segja.
Tyrknesk stjórnvöld kvörtuðu undan framkomu gagnvart tyrkneska liðinu í Keflavík
Utanríkisráðuneytið með málið til skoðunar.
Svona var blaðamannafundur KSÍ vegna leiksins gegn Tyrkjum
Erik Hamrén og Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi KSÍ vegna leiksins gegn Tyrkjum.
Hatrinu rignir yfir íslenska íþróttablaðamenn vegna óþekkts þvottaburstamanns
Stuðningsmenn tyrkneska landsliðsins í fótbolta hafa lagt samfélagsmiðla Knattspyrnusambands Íslands í hálfgert einelti í kvöld auk þess sem Twitter reikningur saklauss blaðamanns Vísis hefur fengið að kenna á því
Pollrólegur yfir reiðum Tyrkjum á Twitter: „Ég ætla ekkert að breyta um lögheimili“
Benedikt Grétarsson, íþróttafréttamaður, varð fyrir slysni sameiginlegur óvinur margra Tyrkja á Twitter í gærkvöldi.