Lífið

Ástin blómstrar hjá Sögu og Villa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Villi og Saga eru nýjasta par bæjarins.
Villi og Saga eru nýjasta par bæjarins.
Ljósmyndarinn og myndlistakonan Saga Sigurðardóttir og söngvarinn og fjölmiðlamaðurinn Vilhelm Anton Jónsson eru eitt nýjasta par bæjarins. Þau hafa verið að hittast undanfarnar vikur.

Saga er 32 ára og einn færasti ljósmyndari landsins. Villi er 41 árs, söngvari hljómsveitarinnar 200 þúsund naglbítar auk þess sem hann hefur komið fram í bíómyndum og gefið út vísindabækur fyrir börn og unglinga.

Saga opnaði ljósmyndasýningu í Bismút á Hverfisgötu 82 í gær þangað sem kærastinn mætti að sjálfsögðu. Sýningin heitir Breathe in og þar sýnir hún í fyrsta skipti málverk sín. 


 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.