Lífið

Sigga Kling svarar spurningum lesenda í beinni

Sylvía Hall skrifar
Sigga fer á kostum í beinni útsendingu í hverjum mánuði.
Sigga fer á kostum í beinni útsendingu í hverjum mánuði.
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir mars birtust í morgun. 

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins. 

Hægt verður að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook Live. Þetta verður að á dagskrá í dag og býðst lesendum að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar. 

Útsendingin hefst klukkan 14. Sigga ætlar að gera sitt besta til að svara öllum spurningum og reyna þannig skyggnast inn í líf okkar lesenda. Hún getur einnig sagt ýmislegt um fortíð lesenda og framtíð þeirra ef þeir biðja hana um að rýna í fæðingardag sinn. Spákonan biðlar til lesenda Vísis að koma með einlægar spurningar sem koma frá hjartanu. Ekki sé nóg að senda aðeins fæðingardaginn.

Útsendingin verður aðgengileg hér á Vísi en hún fer einnig fram í gegnum Facebook-síðu Vísis klukkan 14 og þar geta lesendur komið spurningum á framfæri.

Klippa: Sigga Kling spáir fyrir lesendum







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.