Lífið

Beck­ham­hjónin fagna postulíns­brúð­kaups­af­mæli

Andri Eysteinsson skrifar
David og Victoria í brúðkaupsdaginn.
David og Victoria í brúðkaupsdaginn. Instagram/DavidBeckham
Fjórða júlí árið 1999 gekk knattspyrnumaðurinn David Beckham að eiga poppstjörnuna og kryddpíuna Victoriu Adams, nú Beckham.

Hjónin fagna því í dag 20 ára brúðkaupsafmæli sem jafnan er kennt við postulín. Í tilefni af deginum birtu þau bæði myndir frá brúðkaupsdeginum auk fleiri mynda frá árunum tuttugu.

 
 
 
View this post on Instagram
WOW 20 years , look what we created Love you so much @victoriabeckham @brooklynbeckham @romeobeckham @cruzbeckham #HarperSeven

A post shared by David Beckham (@davidbeckham) on Jul 4, 2019 at 12:41am PDT

Hjónin hafa verið í sambandi frá árinu 1997 en þau kynntust á góðgerðarleik sem David spilaði í. David og Victoria skelltu sér út fyrir landsteinana til þess að kvænast en kastalinn í Luttrellstown í Írlandi varð fyrir valinu og varð mikið fjölmiðlafár í Bretlandi vegna sambands þeirra og hjúskapar.

David og Victoria eiga fjögur börn, Brooklyn fæddan 1999, Romeo fæddan 2002, Cruz fæddan 2005 og dótturina Harper fædda 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.