Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Steingeitin: Styrkur þinn er að eflast dag frá degi

Sigga Kling skrifar
Elsku Steingeitin mín, þú ert með óútskýranlega færni til að hreyfa heiminn til, bara ef þú ákveður það, því þú hefur kraft á við Súperman á þessu ári. Þú ert að byggja svo sterkar undirstöður að framtíð þinni, svolítið eins og að byggja grunn að framtíðarhúsi, þér finnst það erfitt því þú sérð ekki hvað húsið verður mikilfenglegt og þú sérð jafnvel ekki núna hvað framtíð þín er mikilfengleg, en þetta tímabil, lætur þig leita og finna lausnir á að hafa allt fullkomið svo þú getur verið stolt af því sem þú gerir.

Af auðveldu lífi verður engin útkoma, svo þó þér finnist þú hafir storminn í fangið þá ertu eins og sannur Íslendingur og trúir að góða veðrið komi þrátt fyrir erfiðar spár. Þú leggur mikið á þig og það er akkúrat það sem mun gefa þér uppskeru, svona eins og þú sért að ljúka prófum og þurfir að vaka dag og nótt til að læra fyrir þau, en einkunnin þín verður 10 sem mun svo sannarlega gera líf þitt léttara. Ef þú ert í peningaþröng þá opnast fyrir þér möguleikar til að bjarga öllu og meira til.

Styrkur þinn er að eflast dag frá degi og ef þú hefur átt við einhver veikindi að etja í huga eða líkama, þá er eins og allar frumurnar þínar verði sterkari og endurnýi sig til að lækna veikindi eða hjartasár.

Þú verður stolt af afkomendum þínum eða fólki þér tengdu og líka sjálfri þér og þú hefur smitandi áhrif á aðra, svo það er afar mikilvægt að hafa það að leiðarljósi að vera hress, kát og jákvæð þó þér finnist þér alls ekki líða þannig. Með því að hafa einbeittan vilja að framkvæma þetta verður þessi ásetningur að persónuleika þínum, þú þarft að læra að vera í mínútunni sem þú lifir og hrinda öllu öðru frá þér nema augnablikinu því það er það eina sem þú hefur.

Knús og kveðja, þín Sigga Kling

Svava, Dorrit, Michelle, Edda, Aron og Davíð.Vísir/getty/fbl

Steingeit 22. desember - 19. janúar

Svava Johansen í Sautján, 7. janúar 

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 31. desember 

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins 17. janúar 

Jón Gnarr, listamaður, 2. janúar 

Tómas Guðbjartsson læknahetja, 11. janúar 

Dorrit Moussaieff forsetafrú, 12. janúar 

Stefán Jakobsson, tónlistarmaður, 14. janúar 

Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, 16. janúar 

Jóhann K. Jóhannsson fréttamaður. 9. janúar 

Guðrún Ýr Eyfjörð, tónlistarkonan GDRN, 8. janúar 

Edda Andrésdóttir, fréttaþulur, 28. desember 

Michelle Obama, forsetafrú, 17. janúar 

Aron Már Ólafsson, Aron Mola, 12. janúar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.