Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Það sem þú leitar að er beint fyrir framan nefið á þér

Sigga Kling skrifar
Elsku Sporðdrekinn minn, þú býrð yfir miklum hæfileikum til að vernda og passa þá sem þú elskar, ert með sterka nærveru og ert kraftmikil persóna, en þú hefur stundum þá tilfinningu að þú sért hræðilega einmana og það kemur fyrir þú kafar allt of djúpt inn í sálina, en þegar þú skoðar betur muntu sjá heilan herskara af fólki sem elskar þig, dáir og virðir.

Þú hefur yfirbragð hins góðviljaða stjórnanda og eignast alloft vini meðal þeirra sem minna mega sín og hefur almennt mikil áhrif á fólk. Ástin er þér stundum eins og sprengjusvæði því þá missirðu stjórnina svo þú skalt fara afar varlega, og ef þú ert að velja þér maka skaltu velja þann sem gefur öryggi og festu.

Þú ert að fara inn á gott tímabil því talan fimm er yfir þér sem veitir þér visst kæruleysi, mikla forvitni og óvænt ferðalög, ný kynni við fólk af öðru þjóðerni og þú munt sjá lífið í öllum regnbogans litum. Þú leysir upp gömul mál, gengur sterkur til verks og nærð tökum á að líða svo miklu, miklu betur.

Breytingar í fjölskyldu þinni munu gefa þér meiri ást og tilgang en þú hefur upplifað síðustu misserin og það er svo nálægt þér það sem þú leitar að, þú ert að horfa allt of langt í framtíðina, svolítið á undan sálinni en það sem þú leitar að er beint fyrir framan nefið á þér, svo um leið og þú sérð það breytist allt. Það er ekkert jafn fagurt og þegar þér líður vel og þú átt eftir að finna margar góðar og nýtar leiðir til þess að skjóta þér á flug.

Í framhaldi af þessu muntu finna að þú ert mjög næmur fyrir lífinu og öllum hliðum þess, og þarft ekkert að óttast því það er uppbygging í sambandi við vinnu, skóla eða eða það sem þú ert að fara að taka þér fyrir hendur og breytingar eru jákvæðar því þeim fylgir styrkur og heppni og þú munt verða alveg í essinu þínu.

Knús og kveðja, þín Sigga Kling

Björk, Karl, Þorgerður, Leonardo, Þórdís, Magnús.Vísir/Getty/FBL

Sporðdreki 23. október - 21. nóvember

Birkir Már Sævarsson, landsliðsmaður í fótbolta, 11. nóvember 

Helga Braga Jónsdóttir, leikkona, 5. nóvember 

Emmsjé Gauti, rappari, 17. nóvember 

Björk Guðmundsdóttir, tónlistarmaður, 21. nóvember 

Karl Bretaprins, 14. nóvember 

Hillary Clinton, stjórnmálamaður, 26. október 

Leonardo DiCaprio, leikari, 11. nóvember 

Magnús Scheving, frumkvöðull, 10. nóvember 

Hörður Ágústsson Macland snillingur, 24. október 

Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar, 1. nóvember 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, 4. október 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Dómsmálaráðherra, Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, 4. nóvember 

Jón Jónsson, tónlistarmaður, 30. október 

Króli, tónlistarmaður, 2. nóvember 

Bergur Ebbi, grínisti, 2. nóvember






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.