Grínistinn tilkynnti um uppistandið á Twitter-síðu sinni í gær en það ber titilinn Aziz Ansari: Right Now. Áður hafði Ansari verið í samstarfi með Netflix í þáttunum Master of None þar sem hann fór með aðalhlutverkið.
New standup special Aziz Ansari: Right Now. Directed by Spike Jonze. Out July 9th on @netflix. (cc: @netflixisajoke) pic.twitter.com/oJBXdbiA1b
— Aziz Ansari (@azizansari) July 1, 2019
Uppistandið er það fyrsta sem kemur frá leikaranum eftir að 23 ára gömul kona skrifaði grein á vefmiðilinn Babe þar sem hún lýsti stefnumóti þeirra sem versta kvöldi lífs síns. Hún sagði hann hafa hundsað augljós merki hennar um að hún hefði ekki áhuga á kynlífi.
Sjá einnig: Aziz Ansari svarar ásökun um kynferðisofbeldi
Hún sendi honum smáskilaboð eftir stefnumótið og gerði honum ljóst að hegðun hans hafi komið henni í óþægilega stöðu. Hann sagðist hafa lesið aðstæðurnar vitlaust og honum þætti það leitt.
Í yfirlýsingu sem fulltrúi Ansari gaf út fyrir hans hönd kom fram að leikarinn hafi talið að það sem átti sér stað hafi algerlega verið með vilja þeirra beggja. Ansari viðurkenndi að þau hafi farið á stefnumót og stundað kynferðislegar athafnir en upplifun hennar hafi komið henni verulega á óvart.