Lífið

Giftu sig aftur í Frakklandi

Sylvía Hall skrifar
Parið í París.
Parið í París. Vísir/Getty
Stjörnuparið Joe Jonas og Sophie Turner giftu sig í annað sinn í Frakklandi á laugardag. Þau gengu upprunalega í það heilaga við látlausa athöfn í Las Vegas í maí en parið trúlofaði sig í október árið 2017 eftir að hafa verið saman í um það bil eitt ár.

Joe Jonas er 29 ára gamall og gerði garðinn frægan með bræðrum sínum í hljómsveitinni Jonas Brothers en hljómsveitin tók nýlega saman aftur og gáfu þeir út nýja plötu fyrr í mánuðinum. Sophie Turner er 23 ára gömul og sló í gegn sem Sansa Stark í þáttunum Game of Thrones.



 
 
 
View this post on Instagram
Nap game strong.

A post shared by J O E J O N A S (@joejonas) on Jun 24, 2019 at 11:12am PDT



Athöfnin fór fram í kastala í Frakklandi en áður hafði parið eytt tíma í París og skoðað borgina. Á gestalistanum mátti finna stór nöfn í Hollywood, til að mynda fyrirsætan Ashley Graham, Dr. Phil og Game of Thrones-stjarnan Maisie Williams. Þá voru bræður Joe, Kevin og Nick, ásamt eiginkonum þeirra Danielle og leikkonunni Priyanka Chopra, að sjálfsögðu mættir.



 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by Sophie Turner (@sophiet) on Jun 22, 2019 at 11:46am PDT



Mikil leynd var yfir brúðkaupinu og hafa hjónin ekki birt neinar myndir frá athöfninni. Það var ekki fyrr en mynd af parinu birtist á Instagram-reikningi Turner sem dagsetningin kom í ljós eftir að Dr. Phil sjálfur bætti við athugasemdinni: „Róa sig! Ein vika til stefnu! Ha! Sjáumst í brúðkaupinu!“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.