Logi: Skökk mynd sem við höfum hér á Íslandi en við getum betur Anton Ingi Leifsson skrifar 12. júlí 2019 20:30
Logi Ólafsson, sparkspekingur Stöðvar 2 Sports, segir að munurinn á íslenskum liðum og mótherjum þeirra í Evrópukeppnum sé mikill. Munurinn sé sér í lagi í peningalegu hliðinni. Valur og KR fengu skell gegn sínum mótherjum en Breiðablik náði í jafntefli gegn Vaduz. Stjarnan var eina liðið sem náði í sigur er liðið marði 2-1 sigur á Levadia frá Eistlandi. En hver er munurinn? Logi svaraði þessari spurningu í samtali við Júlíönu Þóru í kvöldfréttum Stöðvar 2 og hinn þaulreyndi Logi svaraði: „Ef þú tekur veltuna hjá Molde og veltuna hjá KR þá kostar KR sirka tuttugu prósent af því sem Molde kostar,“ sagði Logi og hélt áfram. „Molde, sem er ekki áskrifandi í Evrópukeppnina, hefur á síðustu árum hafa á síðustu fjórum árum þénað 1,5 milljarð íslenskra króna í sölum á leikmönnum. Þetta er skökk mynd sem við höfum hér á Íslandi en við getum betur.“ Logi segir að einnig liggi munurinn í því að mótherjar íslensku liðanna séu oftar en ekki atvinnumenn á meðan íslensku liðin eru blönduð; einhverjir spila bara fótbolta en aðrir eru í annarri vinnu. „Öll lið sem við erum að etja við þau eru fulltíða atvinnumenn og ef við ætlum að ná lengra þá verðum við að stíga það skref inn í atvinnumennsku.“ „Það eru sumir leikmenn á Íslandi sem gera ekkert annað en að spila fótbolta. Hinir eru að vinna. Það þarf að jafna þetta, það þarf að búa til atvinnumennsku og það er eina sem hjálpar og fá peninga inn í þetta.“ Innslagið í heild sinni má sjá hér að neðan.
Evrópudeild UEFA Meistaradeild Evrópu Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti Dagskráin í dag: Úrslitakeppni karla hefst Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn Fleiri fréttir Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Sjá meira