Erlent

Kvarta yfir „pervertum í runnum“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Tveir stríplar á góðri stundu. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Tveir stríplar á góðri stundu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Striplingar (e. nudist) í Bois de Vincennes garðinum í París, höfuðborg Frakklands, hafa að undanförnu kvartað sáran yfir gægjum (e. voyeur) og fólki með sýniþörf sem truflar þá í viðleitni þeirra til þess að njóta lífsins nakið í garðinum.

Segjast stríplarnir ekki hafa fengið að afklæðast óáreittir upp á síðkastið, en tæp tvö ár eru síðan þeir fengu til umráða rúmlega átta þúsund fermetra svæði í garðinum þar sem þeir geta löglega stundað iðju sína, það er að vera allsberir.

Þeir segjast hafa orðið varir við „ámælisverða hegðun“ einstaklinga sem tilheyra ekki hópi þeirra, þar á meðal sé fólk sem nýtur þess að horfa í laumi á kynfæri annarra og fólk með sýniþörf. Sögðust aðrir hafa orðið varir við „perverta í runnum.“

Guardian hefur eftir einum striplingi að konur í hópi þeirra séu hræddar.

„Þeir koma og angra konurnar, auðvitað eru þær hræddar. Stundum kemur lögreglan og lítur við en ef hún stendur menn ekki að verki við skýlaust brot, þá getur hún lítið sem ekkert gert.“

Catherine Baratti-Elbaz, sem fer með málefni borgarhlutans sem garðurinn tilheyrir, segir að beiðni um aukið eftirlit á svæðinu hafi verið lögð fram til lögreglu eftir að kvartanir stríplanna tóku að berast.

Segir úlfalda gerðan úr mýflugu

Laurent Luft, forseti Striplingasamtaka Parísar, segir málið hafa verið blásið upp innan raða stríplinga.

„Eftir að hafa heyrt af þessum kvörtunum spjallaði ég við karlkyns vin minn sem fer á þetta svæði á hverjum degi. Hann sagðist aldrei hafa séð neina skuggalega hegðun sem ekki samræmist hugmyndinni um stripl.“

Hann viðurkennir þó að upplifun kvenstrípla kunni að vera önnur.

„Ég er ekki viss um að ég myndi fara þangað ef ég væri kona, en margar vinkonur mínar gera það þó. Öll striplingasvæði, til að mynda strendur, jafnvel venjulegar strendur þar sem konur eru í bikiníi, muna draga að sér frústreraða karlmenn,“ sagði Luft.

Frakkland er meðal þeirra landa sem skora hæst sem áfangastaður strípla, en um 4,7 milljónir strípla fækka þar fötum á ári hverju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×