Bíó og sjónvarp

Sjáðu stiklu úr myndinni Hvítur Hvítur dagur

Birgir Olgeirsson skrifar
Ingvar E. er í aðalhlutverki.
Ingvar E. er í aðalhlutverki.
Hér má sjá stiklu úr myndinni Hvítur Hvítur dagur sem frumsýnd verður á Íslandi 6. september næstkomandi. Myndin hefur vakið athygli erlendis þar sem hún hefur unnið til verðlauna og hafa gagnrýnendur farið lofsömum orðum um hana.

Myndin segir frá lögreglustjóranum Ingimundi sem hefur verið í starfsleyfi frá því að eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu sína. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst. Er um að ræða sögu um sorg, hefnd og skilyrðislausa ást.

Leikstjóri myndarinnar er Hlynur Pálmason en með helstu hlutverk fara Ingvar E. Sigurðsson, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Arnmundur Ernst Backman, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elíasdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sverrir Þór Sverrisson og Þór Tulinius.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.