Lífið

Herra Hnetusmjör og Sara Linneth eiga von á barni

Sylvía Hall skrifar
Herra Hnetusmjör og Sara Linneth.
Herra Hnetusmjör og Sara Linneth. Sara Linneth
Það er nóg um að vera hjá rapparanum Herra Hnetusmjör þessa dagana. Hann vinnur nú að því að gera upp skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur og stefnir að því að opna hann í lok sumars. Í febrúar er komið að öðrum og stærri tímamótum þegar rapparinn verður faðir.

Þetta tilkynnti Sara Linneth Castañeda, kærasta rapparans, á Instagram-síðu sinni í gær. Þar birtir hún sónarmyndir og tilkynnir að erfinginn komi í heiminn í febrúar á næsta ári.



 
 
 
View this post on Instagram
Febrúar 2020

A post shared by Sara Linneth Lovísud Castañeda (@saralinneth) on Jul 29, 2019 at 3:44pm PDT



Herra Hnetusmjör er landsmönnum vel kunnugur en hann hefur verið einn vinsælasti rappari landsins undanfarin ár. Þá hefur Sara getið sér gott orð á samfélagsmiðlum, var á árum áður tískubloggari og hefur talað opinskátt um reynslu sína af því að fella niður grímuna og leita sér aðstoðar. Hún stundar nám í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands.

Parið hefur verið saman í tvö og hálft ár.



 
 
 
View this post on Instagram
Eigum 2.ára afmæli

A post shared by Sara Linneth Lovísud Castañeda (@saralinneth) on Jan 6, 2019 at 10:01pm PST


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×