Eiturmyndandi E.coli, hinar svokölluðu STEC-bakteríur, hafa verið fyrirferðamiklar í fréttaflutning sumarsins. Alls greindust 24 einstaklingar með STEC, eftir að hafa heimsótt ferðaþjónustubæinn Efstadal II fyrr í sumar, þar af voru 22 börn.
Matvælastofnun telur faraldurinn í Efstadal gefa tilefni til að árétta mikilvægi almenns hreinlætis og handþvottar við meðhöndlun matvæla, sem stofnunin gerir á heimasíðu sinni. Þá sé einnig mikilvægt að huga að steikingu kjötvara, enda sýndu rannsóknir á síðasta ári að STEC-bakteríur finnast í um 30% sýna af lambakjöti og um 11,5% af nautakjöti á íslenskum smásölumarkaði.
Steikin má vera rauð, ekki borgarinn
Þrátt fyrir það segir Matvælastofnun að ekki þurfi að óttast þó nautasteikur eða lambakjöt sé ekki gegnumsteikt. Á hráum kjötstykkjum eru bakteríur á ysta lagi kjötsins en ekki inni í vöðvanum. Þær drepast því þegar kjötið er steikt eða grillað við háan hita.Annað gildi þó um hamborgara og aðra rétti úr hökkuðu kjöti. „Þegar kjöt er hakkað dreifast örverur um kjötið. Létt steiking drepur því ekki bakteríur sem eru til staðar í kjötinu. Til þess að drepa STEC og aðrar sjúkdómsvaldandi örverur verður að steikja hamborgarana og aðra rétti úr hakki í gegn eða þannig að kjarnahitastig sé a.m.k. 75°C,“ útskýrir Matvælastofnun sem ráðleggur fólki að hafa þrennt í huga áður en hamborgarar eru bornir fram:
- Að borgarinn sé gegnumheitur (Ath. setjið ostinn ekki of snemma á kjötið)
- Ef borgarinn er skorinn í miðju á ekki að sjást í bleikt kjöt
- Að safi sem rennur úr kjötin sé tær