Verið er að undirbúa opinbera heimsókn til Íslands. Þetta staðfesti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra við fréttastofu á dögunum. Hann segir líklegt að heimsóknin verði fljótlega en dagsetningar liggi ekki fyrir.
Gagnrýnir löggjöf til verndar hinsegin fólki
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna ’78, er ósátt við að hinsegin fólk á Íslandi þurfi að sitja undir því að unnið sé að komu Pence. Manns sem hafi allan sinn feril, hvort sem er í stjórnmálum eða utan þeirra, barist af fullum krafti gegn hinsegin réttindum.„Mike Pence er á móti hjónaböndum okkar. Hann er svo eindregið á móti þeim að árið 2013 skrifaði hann sem ríkisstjóri undir lög í Indiana sem gerðu það refsivert fyrir samkynja pör að reyna að sækja um hjónavígsluvottorð,“ segir Þorbjörg í pistli sínum á Vísi sem ber yfirskriftina „Ekki séns, Mike Pence“.
„Mike Pence er fylgjandi því að okkur sé mismunað. Hann telur það eðlilegt að fólk megi neita okkur um þjónustu fyrir það hver við erum. Sem ríkisstjóri skrifaði hann undir lög árið 2015 sem veittu heimild til mismununar á hinsegin fólki á grundvelli trúarskoðana.“
Þá hafi Mike Pence harðlega gagnrýnt löggjöf sem eigi að vernda hinsegin fólk fyrir hatursglæpum.
Mælir með afhommunarmeðferðum
„Hann birti sem ritstjóri Indiana Policy Review m.a. greinar um að hommar og lesbíur ætti ekki að ráða til vinnu. Það tók hann og hans nánasta samstarfsmann enda ekki langan tíma að fá þúsundir trans fólks reknar úr gervöllum Bandaríkjaher, en bann við trans fólki í hernum tók gildi 12. apríl síðastliðinn,“ segir Þorbjörg.Mike Pence njóti ráðgjafar og stuðnings haturssamtaka sem berjist gegn réttindum hinsegin fólks með kjafti og klóm.
„Raunar sat hann sjálfur eitt sinn í stjórn slíkra samtaka, Indiana Family Institute, sem mæla t.d. með afhommunarmeðferðum og eru alfarið á móti því að samkynja pör ættleiði börn. Afhommunarmeðferðir eru pyntingar og til slíkra meðferða vildi Mike Pence færa ríkisfjármuni árið 2000 - úr sjóðum samtaka sem veita aðstoð vegna HIV og alnæmis.“
Þorbjörg segir upptalningu sína, sem sé alls ekki tæmandi, sýna að Pence sé annálaður andstæðingur og illgjörðarmaður hinsegin fólks.
Ekki séns
„Eða eins og Bandaríkjaforseti grínaðist með samkvæmt heimildarmönnum the New Yorker þegar réttindi hinsegin fólks bar á góma innan veggja Hvíta hússins: „Ekki spurja þennan gaur - hann vill hengja þau öll!”Hvort í þessum ummælum leynist sannleikur er ógjörningur að segja, en ljóst er að Mike Pence hefur valdið hinsegin fólki þjáningum svo áratugum skiptir og er hvergi nærri hættur.“
Nú ætli ríkisstjórn Íslands að taka á móti Mike Pence, ræða kurteisislega við hann um viðskiptasamráð og efla með því tengslin við Bandaríkin.
Allar slíkar áætlanir eru hrein og klár vanvirðing við samfélag hinsegin fólks á Íslandi. Við munum ekki sitja undir því þegjandi að hann sé boðinn velkominn hingað til lands. Ekki séns.