Bjarni Benediktsson skaut föstum skotum á forystu Miðflokksins í gær þar sem sömu menn þar og hefðu tekið þátt í að undirbúa innleiðingu Þriðja orkupakkans hér á landi væru nú alfarið á móti honum og segðu að upplýsingar vantaði. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins svaraði á Facebook og sagði að þeir hefðu ekki innleitt pakkann.
Bjarni benti þá á minnisblöð á Facebooksíðu sinni um málið sem sýndu svart á hvítu að Gunnar Bragi Sveinsson sem var utanríkisráðherra á árunum 2013-2016 hefði tekið þátt í að innleiða pakkann. Við sögðum frá innihaldi minnisblaðanna í Bylgjufréttum í hádeginu.
Tók þátt í að undirbúa málið en kláraði ekki
Gunnar Bragi segir þetta rétt, hann hafi hins vegar ekki klárað málið.„Það er ekki fyrr en árið 2016 þegar arftaki minn er kominn til valda í utanríkisráðuneytinu sem málið er svo klárað. Þá er tekin ákvörðun um að leita ekki undanþágu hjá sameiginlegu EES-nefndinni. Það er því annarra að svara fyrir það en þegar ég er ráðherra þá að sjálfsögðu held ég áfram með innleiðinguna sem mér bar að gera og þingið tók þátt í því að fullu,“ segir Gunnar Bragi.
Hann segir jafnframt að sífellt komi fram nýjar upplýsingar um hvaða áhrif Þriðji orkupakkinn muni í raun hafa þannig að hann viti mun meira um málið nú en þegar hann var ráðherra.
„Við vitum miklu meira um þennan orkupakkann og við vitum miklu meira um Fjórða orkupakkann og ég ætla bara að vona að menn séu svo skynsamir að skipta um skoðun ef þeir hafa myndað sér skoðun á þessu máli,“segir Gunnar Bragi.
Gríðarlegir hagsmunir í húfi
Hann segir að ef málið nái fram að ganga við þriðju afgreiðslu þess á Alþingi nú ágúst muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir landsmenn.„Við smám saman gefum þá eftir hvernig við ráðstöfum okkar orkuauðlindum, þannig að við höfum ekki lengur yfirráð yfir verðlagningu rafmagns eða orkutengingum. Við erum ekki að gefa eftir völd yfir auðlindunum heldur verðlagningu og tengingu,“ segir Gunnar.
Gunnar segir um að ræða hræðsluáróður þegar ríkistjórnarflokkarnir segi að EES samningurinn sé í uppnámi verði málinu hafnað.
„Og ég ætla að vona að forysta Sjálfstæðismanna hlusti á sína flokksmenn í þessu máli þeir þurfa ekki að hlusta á okkur Miðflokksmenn,“ segir Gunnar.