Brauðtertukeppnin á rætur að rekja til létts gríns hennar og Erlu Gísladóttur sem hefur heldur betur undið upp á sig í Facebook-hóp sem kenndur er við Brauðtertufélagið og telur yfir 8.000 manns.
„Ég týndist víst líka einu sinni,“ segir Erla á léttu nótunum enda að vonum ánægð með undirtektirnar. „Ég verð að þakka öllum þessum frábæru þátttakendum því án þeirra hefði ekki verið nein keppni. Þetta fór fram úr mínum björtustu vonum. Brauðtertan er greinilega upprisin og mér heyrist á öllu að við verðum að gera þetta að árlegum viðburði,“ segir Erla.
Siggi Hall segist ekki efast um að brauðtertukeppnin sé komin til að vera. „Ég er alveg staðfastur á því að þetta verður árlegt og verður bara flottara og betra. Það þarf bara að semja einhverjar reglur af því að brauðterta á að vera brauðterta og má ekki vera eitthvert rugl. Þetta vex og dafnar og verður bara flott konsept og mjög í hávegum haft í alla staði,“ segir Siggi brattur.
Enginn viðbjóður
En brauðtertur eru náttúrlega viðbjóður …„Nei. Sko, þetta er nefnilega enginn viðbjóður. Brauðtertur eru góðar nema þær séu vondar,“ segir Siggi og grípur til varna fyrir þennan gamalgróna veislukost og majónesið, límið sem heldur öllu gumsinu saman.
„Það er oft dálítið ómaklega að majónesi vegið. Það er ekkert eitrað, ógeðslegt og vont eins og fólk er að segja. Nema ef þú tekur eins og þrjá desilítra af majónesi með tómatsósu í svona kokteilsósuformi og borðar það allt saman með einhverjum vondum frönskum kartöflum, þá verður það ekki sniðugt. Þá er þetta kransæðakrem en það er nú önnur saga,“ heldur meistarakokkurinn áfram.
„Brauðtertur blandaðar með majónesi og sýrðum rjóma og eins og er módern í dag, grískri jógúrt og svona. Það er allt í lagi. Það er bara fínt.“
Borðað með augunum
Siggi leggur mikla áherslu á að brauðterturnar líti vel út og að þær verði að vera fagurlega skreyttar.„Það er mikið atriði af því að brauðterta á að vera skreytt. Maður borðar sko brauðtertu líka með augunum. Hún er skraut á borði og það eiga alltaf að vera brauðtertur í öllum skírnar- og fermingarveislum. Og stúdentsveislum auðvitað. „Það verður engin brauðterta í ár,“ söng Bjartmar Guðlaugsson þegar hann sá að hann myndi aldrei verða stúdent.“
Eiginlega alíslensk
Siggi segir að eftir nokkra eftirgrennslan hafi hafi hann og Svala Ólafsdóttir, eiginkona hans, komist að þeirri niðurstöðu að brauðtertan sé eiginlega í grunninn íslenskt fyrirbæri.„Svíar eiga sko smörgåstårta sem er ekki alveg það sama. Svo veit ég líka að okkar kæru frændur, Færeyingarnir, eru mjög miklir brauðtertumenn. Og það getur kannski og líklega verið komið frá Íslandi.
Þessi sérstaka brauðterta, ég held hún sé íslensk svona með rækjusalatinu, eða með skinku og aspassalati og svo er hangikjötið náttúrlega bara séríslenskt og svo framvegis.“