73 ára kona kom tvíburum í heiminn Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2019 13:18 Konan varð barnshafandi að lokinni glasameðferð. Skjáskot
73 ára indversk kona í ríkinu Andhra Pradesh kom tvíburastelpum í heiminn í gær. Konan varð barnshafandi að lokinni glasameðferð. „Móðirin og börnin eru við góða heilsu,“ segir læknirinn Uma Sankar í samtali við BBC. Móðirin, Mangayamma Yaramati, segir að hún og 82 ára gamall eiginmaður hennar, hafi ávallt viljað eignast börn en að það hafi ekki tekist fyrr en nú. „Við erum svakalega hamingjusöm,“ segir faðirinn Sitarama Rajarao. Aðspurð um hvað verði um börnin í framtíðinni, fari svo að foreldrarnir falli frá á næstunni, segir hann ekkert vera í þeirra höndum. „Það sem gerist, gerist. Þetta er allt í höndum guðs.“ Mangayamma segist hafa orðið fyrir nokkru aðkasti í heimabæ sínum þar sem hún hafi verið barnlaus. „Við höfum margoft reynt og hitt marga lækna. Ég hef því aldrei verið hamingjusamari.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kona á áttræðisaldri fæði barn á Indlandi, en árið 2016 kom önnur kona á áttræðisaldri, Daljinder Kaur, dreng í heiminn.
Börn og uppeldi Indland Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Innlent Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Innlent „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent Fleiri fréttir Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Segir sýrlensku þjóðina þreytta og vilja fá að lifa í friði Sjá meira