Skoðun

Í hópi þeirra bestu

Jón Atli Benediktsson skrifar
Á undanförnum misserum hafa ítrekað komið fram niðurstöður um að fræðasvið Háskóla Íslands raðast meðal þeirra bestu í heiminum á alþjóðlegum matslistum háskóla. Háskóli Íslands er eini alhliða háskóli landsins og starfar á fimm fræðasviðum og er afar ánægjulegt að sjá á hversu breiðum grunni árangur skólans mælist. Þessar jákvæðu niðurstöður eru mikilvægar vegna þess að alþjóðleg samkeppnishæfni Háskólans er grundvallaratriði fyrir það þekkingarsamfélag sem við viljum skapa hér á Íslandi. „Þekking skapar orðspor þjóða,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti eitt sinn og það eru orð sem við hjá Háskóla Íslands svo sannarlega tileinkum okkur.

Sem dæmi um stórkostlegan árangur má nefna að fjarkönnunarrannsóknir við skólann eru í sjötta sæti á heimsvísu að mati hins virta Shanghai Ranking lista. Fjarkönnun beinist að greiningu mynda af yfirborði jarðar, og nýtist m.a. við að fylgjast með þeim öru breytingum sem eru að verða samfara hlýnun jarðar og er því afar mikilvægt rannsóknarsvið fyrir Ísland og heiminn allan. Jarðvísindi okkar eru einnig metin á meðal 100 bestu í heiminum á sama lista. Hjúkrunarfræði er á topp 150 listanum, lífvísindi meðal 200 bestu og svona má áfram telja.

Það eru yfir 17.000 háskólar í heiminum. Háskóli Íslands er einn af 500 bestu háskólum í heimi samkvæmt nýlegu mati Shanghai Ranking og er raðað meðal 300 bestu háskóla í heimi af Times Higher Education World University Rankings, tveimur virtustu alþjóðlegu matslistum háskóla. Þetta er gríðarlega góður árangur sem byggir annars vegar á mikilli eflingu vísindastarfs síðastliðin ár og hins vegar öflugu alþjóðlegu og innlendu samstarfi sem fer sífellt vaxandi.

Öflugt og kraftmikið vísindastarf er forsenda þeirrar nýsköpunar sem mun knýja þekkingarsamfélög 21. aldarinnar. Þjóðir um allan heim fjárfesta í rannsóknarháskólum til að tryggja samkeppnishæfni sína. Við hjá Háskóla Íslands erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð undanfarin ár en erum staðráðin í að ná hærra og enn lengra í áframhaldandi leit okkar að þekkingu í þágu íslensks samfélags.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×