Lífið

Sjáðu skrautleg atvinnuviðtöl þegar Steindi réði leikstjóra

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steindi fann leikstjóra.
Steindi fann leikstjóra.
Steindi og leikhópurinn X eru að framleiða trúarlega gay vampíru sprautusplatter mynd sem verður stranglega bönnuð innan 16 ára. Kvikmyndin ber nafnið Þorsti.

Kvikmyndin Þorsti gerist í litlum bæ, ekki ólíkum Reykjavík þar sem óöld liggur í loftinu og undarlegir glæpir og hrottaskapur virðast vera daglegt brauð. Myndin Fjallar um Huldu sem er grunuð um að hafa orðið valdur að andláti bróður síns og er því til rannsóknar hjá Jens rannsóknarlögreglu.

Í þáttunum Góðir Landsmenn sem eru á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum er fylgst með framleiðsluferli myndarinnar sem Steinþór gerir samhliða þess að vera vinna að venjulegum viðtalsþáttum um venjulega Íslendinga.

Í þættinum í gær fékk Steindi ábendingu frá kvikmyndaframleiðandanum Sigurjóni Sighvatssyni um að hann þyrfti að ráða inn leikstjóra, og helst konu.

Á dögunum auglýsti hann eftir leikstjóra inni á Facebook-síðunni Vinna með litlum fyrirvara og fékk í framhaldinu nokkrar konur til að koma til sín í atvinnuviðtal.

Atvinnuviðtölin gengu upp og niður og voru ekki allar konurnar að kaupa myndina Þorsta eins og sjá má hér að neðan.

Hópurinn safnar núna fyrir kvikmyndinni á sérstakri Karolina Fund síðu sem sjá má hér en kvikmyndin á að vera frumsýnd í lok október.

 


Tengdar fréttir

Steindi kominn með leikstjóra

"Jæja þá er ég loksins búinn að finna leikstjóra fyrir trúarlegu gay vampíru sprautuklám-thrillerinn ÞORSTA.“

Steindi safnar fyrir kvikmyndinni

"Hjálpaðu Steinda að hjálpa Hirti (sem er held ég alveg að fara að deyja) og leikhópnum X að gera alvöru bíómynd þar sem þau munu loksins fá að vera í aðalhlutverki. Án ykkar deyr hann gleymdur maður. Viljið þið hafa það á samviskunni?“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.