Lífið

Shia LaBeouf táraðist þegar hann borðaði sjúklega sterka vængi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shia LaBeouf er oft mjög skemmtilegur í viðtölum.
Shia LaBeouf er oft mjög skemmtilegur í viðtölum.
Leikarinn skrautlegi Shia LaBeouf var á dögunum gestur í þætti First We Feast á You-Tube en þeir kallast Hot Ones. Hann var fyrsti gesturinn í tíundu þáttaröðinni.

Í þáttunum ræða þáttastjórnandinn og gesturinn saman en á sama tíma borða þau vel sterka vængi með mismunandi.

LaBeouf settist hjá Sean Evens og borðaði eldheita vængi meðan hann svaraði skemmtilegum spurningum um lífið og ferlinn.

Viðtalið stendur yfir í um hálftíma og alltaf verða vængirnir sterkari og sterkari en að lokum var leikarinn farinn að tárast vel, enda eru með sterkustu sósum heims notaðar á vængina.

Shia LaBeouf hefur í gegnum tíðina komið sér í fjölmiðlana fyrir misjafnar ástæður og alls ekki alltaf af jákvæðum ástæðum.

Hér að neðan má sjá viðtalið sem margar milljónir hafa horft á nú þegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.