Innlent

Einn fluttur á slysadeild eftir bílveltu í Grafarholti

Samúel Karl Ólason skrifar
Ekki þurfti dælubíl á vettvang til að hreinsa eldsneyti eða annað af götunni og var vettvangurinn því afhentur lögreglu til rannsóknar.
Ekki þurfti dælubíl á vettvang til að hreinsa eldsneyti eða annað af götunni og var vettvangurinn því afhentur lögreglu til rannsóknar. Vísir/Haukurinn
Flytja þurfti einn einstakling á slysadeild eftir bílveltu í Grafarholti í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var viðkomandi lítillega slasaður. Tveir bílar lentu saman með þeim afleiðingum að annar valt.

Þá þurfti ekki dælubíl á vettvang til að hreinsa eldsneyti eða annað af götunni og var vettvangurinn því afhentur lögreglu til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×