Lífið

Kylie Jenner og Travis Scott taka sér pásu frá hvort öðru

Stefán Árni Pálsson skrifar
Parið saman á Met Gala í New York í vor.
Parið saman á Met Gala í New York í vor. vísir/getty
Bandaríska samfélagsmiðlastjarnan Kylie Jenner, sem hefur náð því að verða yngsti sjálfskapaði milljarðamæringur sögunnar, og rapparinn Travis Scott hafa ákveðið að taka sér pásu frá hvort öðru. Miðillinn E! greinir frá.

Jenner er aðeins 22 árs gömul og hefur auðgast mikið á snyrtivörumerkjalínu sinni Kylie Cosmetic. Auðæfi Jenner eru nú metin á einn milljarð dollara, eða því sem nemur um 120 milljörðum íslenskra króna.

Saman á parið eina stúlku sem fæddist 1. febrúar 2018 og ber hún nafnið Stormi Webster. Jenner og Scott byrjuðu í ástarsambandi árið 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.