Þær sögur urðu honum svo innblástur að bókinni Mamma klikk! sem nú lifnar við á leiksviðinu. „Mamman í þessari sögu er svolítið byggð á því hvernig ég leit á mömmu mína þegar ég var yngri,“ útskýrir Gríma. „Mér fannst hún svo áhugaverður karakter. Allt sem hún gerði var svo svakalega fyndið og skemmtilegt. Ég var alltaf að segja fólki sögur af henni og Gunni fór að safna þeim saman,“ útskýrir Gríma en segist líta móður sína öðrum augum í dag. „Ég sé núna meira hversu yndisleg hún er og góð mamma. Áður sá ég meira fyndnu og skrítnu hliðar hennar.“
Fékk að vera ein í strætó á meðan mamma keyrði
Aðspurð um sögurnar segist Gríma muna eftir að hafa sagt frá því þegar mamma hennar keypti sér strætó. „Hún er auðvitað listakona og keypti flygil til að setja inn í strætóinn, tók svo meirapróf til að geta keyrt hann á meðan vinur hennar, Davíð Þór, spilaði á flygilinn sem hluti af gjörningi. Mér fannst þetta geggjað, aðallega þar sem ég fékk að vera alein í strætó á meðan mamma mín keyrði hann. Hún setti líka sófa upp í tré í bústaðnum okkar,“ rifjar Gríma upp og hlær en það atriði er einmitt útfært í bókinni.“En ætli mamma hennar hafi vitað af því að dóttirin væri sífellt að segja sögur af henni?
„Ég veit það ekki,“ svarar Gríma hugsi og bætir svo við flissandi: „Hún veit það alla vega núna!“
Sá Macbeth aðeins sjö ára
Í bókinni notast Gunnar Helgason við ýmiss konar sögur, af eiginkonu sinni, Björk Jakobsdóttur, sögur af mömmu Grímu og margar fleiri og útkoman er stórskemmtilegur karakter sem Valgerður Guðnadóttir túlkar í verkinu Mamma klikk! Gríma fór í prufu án þess að vita af tengingu sinni við söguna og var svo boðið hlutverkið. Áður hafði Gríma farið með hlutverk í verkunum Fjalla Eyvindi og Höllu, Bláa hnettinum, Óvitum og Línu Langsokk.„Ég hef alltaf haft áhuga á leikhúsi og farið með mömmu og pabba á sýningar. Ég var ekki nema sjö ára þegar ég fór að sjá Macbeth í Þjóðleikhúsinu og held ég hafi sofið yfir Vesalingunum,“ segir Gríma og hlær.
Aðspurð hvort stefnan sé þá að verða leikkona svarar Gríma að hún sveiflist svolítið fram og til baka með það en í raun hafi henni þó aldrei dottið annar starfsframi í hug. „Ég hef verið ákveðin í að vera leikkona frá því ég var sjö ára en ég kannski kíki aðeins í kringum mig á aðra möguleika áður en ég tek lokaákvörðun.“