Hákarl beit tvo Breta við strendur Ástralíu Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2019 10:21 Ekki liggur fyrir hvers konar hákarl beit mennina. Vísir/getty
Tveir breskir menn særðust alvarlega þegar hákarl beit þá á vinsælum ferðamannastað í Ástralíu. Annar maðurinn missti fót og hinn særðist á fæti. Annar maðurinn, Allister Raddon, er 28 ára gamall og hinn, Danny Maggs, 22. Sá eldri missti fótinn en þeir eru báðir í stöðugu ástandi.Samkvæmt frétt BBC voru mennirnir í dagssiglingu og hafði báturinn verið stöðvaður og voru þeir á sundi að snorkla við bátinn þegar hákarlinn réðst á þá. Nánar tiltekið voru þeir í sjónum við Whitsunday-eyjar nærri Kóralrifinu mikla.Vitni segja í samtali við ABC News í Ástralíu að þeir Raddon og Maggs hafi verið að ærslast í sjónum þegar hákarlinn réðst á þá.Mennirnir voru fluttir með bátnum í land og þaðan voru þeir fluttir með þyrlu á sjúkrahús. Árásin átti sér stað um tíu kílómetra frá vettvangi annarrar árásar hákarls í nóvember í fyrra þegar ástralskur maður lét lífið. Yfirvöld segja nánast ómögulegt að koma fyrir nokkurs konar varnarnetum við eyjarnar. Það hafi verið reynt eftir árásina í fyrra. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fara eigi í veiðiátak í kjölfari árásarinnar.
Ástralía Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Sjá meira