Það eru orð að sönnu, því veðurkort Veðurstofunnar bera með sér gular viðvaranir víða um land: Allt frá Ströndum á Vestfjörðum, meðfram norðurströndinni og allt að suðausturhorninu. Á norðan- og austanverðu landinu má búast við talsverðu hríðarveðri og undir Vatnajökli verður hvassviðri.
Sjá einnig: Hver viðvörunin á fætur annarri
Hríðarviðvaranirnar gilda fram á kvöld, en veðrið verður einna verst upp úr hádegi og þar til síðdegis þegar þéttur úrkomubakki kemur inn á Tröllaskaga og síðar norðausturland. Undir Vatnajökli má búast við stormi þvert á veg núna í morgunsárið og aftur í kvöld, en hviður þar geta farið yfir 40 m/s þegar verst lætur. „Ljóst er að vegfarendur þurfa að fara að öllu með gát og fylgjast með veðurspám og tilkynningum frá Vegagerðinni,“ eins og segir á vef Veðurstofunnar.
Engar viðvaranir eru í gildi fyrir suðvesturhornið, en þó gæti orðið bálhvasst undir Eyjafjöllum og á sunnanverðu Snæfellsnesi núna með morgninum og aftur í kvöld. Veðurfræðingur útilokar ekki heldur að það gæti orðið hviðótt á Kjalarnesi um tíma. Aukinheldur gæti snjóað örlítið á höfuðborgarsvæðinu, rétt eins og gerði í gærkvöldi, en þó er ekki útlit fyrir að „það verði neitt að ráði,“ eins og veðurfræðingur kemst að orði. Það dregur síðan úr vindi og úrkomu á morgun.
Viti fólk af öðrum skólum þar sem kennsla fellur niður vegna veðurs er vel þegið að láta Vísi vita, netfangið er ritstjorn@visir.is
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:Minnkandi norðanátt, 8-15 m/s um kvöldið, en hægari V-lands. Dálítil él, en léttskýjað S- og V-til. Frost 0 til 6 stig að deginum.
Á laugardag (fyrsti vetrardagur):
Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en stöku él í fyrstu NA- og A-til. Frost 0 til 9 stig, kaldast inn til landsins.
Á sunnudag og mánudag:
Norðvestlæg átt 5-13 m/s, bjart með köflum og hiti 0 til 5 stig við V-ströndina. Bjartviðri um austanvert landið og frost 0 til 6 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir vestanátt og vætu með köflum N- og V-til, annars þurrt. Hiti 0 til 7 stig