„Við fáum fyrst beinskiptu bílana upp úr áramótum en aðalsölubíllinn okkar verður auðvitað sjálfskipti 150 hestafla bíllinn í mildri tvinnútgáfu, en hann er væntanlegur með vorinu,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, vörumerkjastjóri Volkswagen, í viðtali við Fréttablaðið. „Sambærilegir bílar verða á svipuðum verðum milli kynslóða en þessar mildari tvinnútgáfur hækka bílinn örlítið í verði. Tengiltvinnútgáfurnar tvær verða svo kynntar næsta haust,“ segir Jóhann enn fremur.
Nýja mælaborðið í Golf er nánast alveg stafrænt og gildir einu hvort um skjái eða takka er að ræða. Skjáir eru snertiskjáir og takkar með snertivirkni. Í mælaborðinu er innbyggt mótald sem tengir hann við höfuðstöðvar Volkswagen svo hægt verður að senda hugbúnaðaruppfærslur gegnum netið. Einnig gefur þetta möguleika fyrir eigendur bílanna að tengjast þeim í gegnum síma sína svo hægt er að sjá til dæmis hvort kveikt sé á ljósum.

Þeir sem eru svo heppnir að eiga Samsung síma munu geta opnað bílinn með símanum og loks er Alexa, hjálparhellan frá Amazon, innbyggð í nýja Golfinn. Í nýjum Golf verður hægt að velja um fimm tvinnútgáfur. Þrjár þeirra eru svokallaðar mildari tvinnútgáfur með 48V rafkerfi, beltaknúnum startara og 48V litíumrafgeymi. Þær gerðir kallast eTSI og verða með 110, 130 og 150 hestafla bensínvélum. Einnig verða nú tvær tengiltvinnútgáfur í boði, önnur samtals 204 hestöfl en GTE útgáfan er nú 245 hestöfl. Ný 13 kílóvattstunda rafhlaða er með meira drægi eða 60 km.
Vélarútgáfur verða fimm samtals, tvær þriggja strokka bensínvélar, 90 og 110 hestöfl, tvær fjögurra strokka dísilvélar sem skila 115 og 150 hestöflum og loks ein metanútgáfa sem er 130 hestöfl. Að sögn tæknimanna Volkswagen hefur tekist að minnka mengun vélanna talsvert og þá sérstaklega dísilvélanna sem blása út 80% minna nituroxíði en áður. Einnig hefur eyðsla dísilvélanna minnkað um 17% miðað við fyrri kynslóð.