Persónulegir jólapakkar Elín Albertsdóttir skrifar 13. nóvember 2019 09:00 Fallegur og persónulegur pakki þar sem notaður er brúnn umbúðapappír sem jafnframt er endurvinnanlegur. Takið eftir greninu og kanilstöngum.
Í framhaldi af umræðu um loftslagsbreytingar er kannski kominn tími til að prófa að endurnýta eitt og annað. Hér eru nokkrar góðar hugmyndir. Gott dæmi um umhverfisvæn jól er að búa til jóladagatal og hengja litlar gjafir á það sem allar gætu talist endurunnar. Það væri til dæmis hægt að fara á nytjamarkaði og finna eigulega smáhluti, fallegar jólaskeiðar, styttur eða annað. Þá er um að gera að vera umhverfisvænn þegar jólagjöfum er pakkað inn. Ekki nota glanspappír heldur frekar umbúðapappír sem hægt er að endurvinna. Hægt er að binda fallega utan um hann með snæri eða garni. Þá er hægt að skreyta pakkann með greinum úr náttúrunni. Slík innpökkun gerir pakkana bæði fallega og umhverfisvæna. Síðan er lítið mál að teikna fallega jólaskreytta merkimiða.Hér er fallega lagt á borð. Skreytingar úr náttúrunni og tauservíettur sem hægt er að nota aftur og aftur.Íslendingar eyða miklum peningum í jólapappír fyrir hver jól. Margar milljónir metra af glansandi pappír enda síðan í ruslatunnunni. Glanspappírinn inniheldur litarefni sem gerir það að verkum að ekki er hægt að endurvinna hann. Fáið heldur börnin til að teikna og lita á venjulegan hvítan pappír fallegar jólamyndir. Þetta er oft gert í leikskólum og kemur mjög vel út. Það er sömuleiðis hægt að nota stimpla með jólamyndum og skreyta pappírinn. Gamlir gjafakassar verða líka eins og nýir þegar þeir hafa verið málaðir og puntaðir. Gjafabönd geta nýst aftur og aftur ef þau eru geymd á milli jóla.Það er sniðugt að safna alls kyns könglum og greinum úr náttúrunni. sem hægt er að nýta í skreytingar.
Birtist í Fréttablaðinu Föndur Mest lesið Erfið leiðin að jólaskónum Jól Gyðingakökur ömmu eru jólin Jól Gleðileg jól á hinum ýmsu tungumálum Jól Ódýrar og einfaldar gjafir frá hjartanu Jólin Óvæntir dýrgripir undir jólatrénu Jólin Samviskulegar smákökur Jól Jólapappír endurnýttur Jólin Beið eftir Bert Jól Jólapakkar hrannast upp Jól Eru jólasveinarnir til í alvöru? Jól