Lífið

Frosti um föðurmissinn: Áfall sem ekki er hægt að lýsa með orðum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frosti ætlar sér enn lengri á sviðinu fjölmiðlanna næstu árin.
Frosti ætlar sér enn lengri á sviðinu fjölmiðlanna næstu árin. vísir/vilhelm
Frosti Logason hefur starfað á X-inu í tuttugu ár eða frá árinu 1999. Hann sló í gegn í rokksveitinni Mínus á sínum tíma og er að gera góða hluti í Íslandi í dag á Stöð 2 um þessar mundir. Frosti er gestur vikunnar í Einkalífinu.

Frosti er í sambandi með Helgu Gabríelu Sigurðar og eiga þau saman einn þriggja ára dreng sem var skýrður í höfuðið á föður Frosta. Þegar Frosti var rúmlega tvítugur missti hann föður sinn í hræðilegu bílslysi. Hann segist vera mjög þakklátur að hafa geta skírt son sinn í höfuðið á honum og varla líður sá dagur þar sem hann hugsar ekki um pabba sinn.

„Þetta var auðvitað bara rosalegt áfall. Þetta er eitthvað sem ekki er hægt að lýsa með orðum því þetta gerist svo óvænt,“ segir Frosti og heldur áfram.

„Allt í einu er faðir manns horfinn af sviðinu og það er bara eitthvað sem maður bjó sig ekki undir. Þetta var rosaleg lífreynsla og sennilega hef ég reynt að dusta þetta af mér fljótt en var örugglega mjög lengi að jafna mig á þessu. Miklu lengur en ég gerði mér grein fyrir. Jafnvel ennþá í dag er ég að vinna eitthvað úr þessu en samt eru komin alveg tuttugu ár síðan.“

Hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir því að þarna væri eitthvað sem hann varð að gera upp.

„Ég fer reglulega til ráðgjafa og það er ekki langt síðan að þetta kom til tals þar. Maður er því ennþá að vinna úr þessu. Það er enginn skóli sem kennir manni að taka á svona. Maður heldur bara í góðu minningarnar og er þakklátur fyrir þann tíma sem maður fékk með viðkomandi.“

Í þættinum ræðir Frosti einnig um Mínustímann skrautlega, hvernig það sé að vera mikið á milli tannanna á fólki fyrir skoðanir sínar, Harmageddon tímann og pararáðgjöf sem hann fór í með Mána, þegar hann tók ákvörðun á einu augabragði að hætta borða kjöt, föðurhlutverkið, um samband sitt við Helgu Gabríelu og margt fleira.


Tengdar fréttir

Orðinn mjög lífhræddur

Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., hefur heillað þjóðina með gríni síðastliðinn áratug.

Átröskunin heltók stóran kafla af lífinu mínu

Vala Kristín Eiríksdóttir er ung og efnileg leikkona sem hefur vakið mikla athygli undanfarin ár fyrir flotta frammistöðu í leiklistarsenunni hér á landi. Vala er gestur vikunnar í Einkalífinu.

Enginn beðið mig afsökunar

"Þú þarft ekki að svara þessu en ég vildi bara segja þér að ég er ekki að fara kjósa þig. Ég ekki að reyna vera dónaleg en mér finnst bara kjánalegt að þú sért að taka þátt í keppni fyrir íslenskar stelpur!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.