Margrét Lára leggur skóna á hilluna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. nóvember 2019 14:19 Margrét Lára fagnar Íslandsmeistaratitlinum með Val. vísir/daníel
Margrét Lára Viðarsdóttir, markahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta frá upphafi, hefur lagt skóna á hilluna. Hún er 33 ára. Margrét Lára varð fjórum sinnum Íslandsmeistari með Val, síðast í haust, og einu sinni bikarmeistari. Þá varð hún fimm sinnum markadrottning efstu deildar. „Ákvörðunin að leggja skóna á hilluna var langt frá því að vera mér auðveld. Ferillinn hefur verið draumi líkastur og ef einhver hefði sagt mér að ég hefði átt eftir að vinna alla þessa titla með liðum mínum og sem einstaklingur þá hefði ég aldrei trúað því,“ segir Margrét Lára í yfirlýsingu frá Val. „Titlarnir eru eitt en allt það frábæra fólk sem ég hef kynnst í fótboltanum er það sem stendur upp úr. Ég er óendanlega þakklát fyrir allt, en kveð með trega og mjög sátt.“ Margrét Lára lék með Duisburg og Turbine Potsdam í Þýskalandi og Linköping og Kristianstad í Svíþjóð. Hún varð markahæst í sænsku deildinni 2011. Eyjakonan skoraði 79 mörk í 124 landsleikjum á árunum 2003-19. Hún skoraði bæði í fyrsta og síðasta landsleiknum sínum. Sá síðasti var 0-6 sigur á Lettlandi 8. október. Í 143 leikjum í efstu deild á Íslandi skoraði Margrét Lára 207 mörk. Þá skoraði hún 18 mörk í 21 bikarleik og 21 mark í tólf Evrópuleikjum. Margrét Lára var útnefnd Íþróttamaður ársins 2007.
Pepsi Max-deild kvenna Reykjavík Tímamót Vestmannaeyjar Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Handbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Fleiri fréttir Samþykktu að taka áminingu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Sjá meira