Innlent

Vinsæl tegund af jólatrjám veðurteppt

Kristín Ólafsdóttir skrifar

Jólatréssala er komin í fullan gang og Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur er á meðal þeirra sem standa vaktina í vertíðinni. Sending af stafafuru, sem nýtur aukinna vinsælda meðal Íslendinga, sat þó veðurteppt þegar fréttamann bar að garði við söluna í kvöld en vongóðir kaupendur þurfa ekki að örvænta – hringt verður í þá þegar furan kemur í bæinn.

Margir höfðu gert sér ferð til Flugbjörgunarsveitarinnar um kvöldmatarleytið í kvöld til að kaupa jólatré. Sveinn Hákon Harðarson meðlimur í Flugbjörgunarsveitinni sagði marga hafa verið snemma í jólatréskaupunum í ár en fjöldinn verði þó meiri eftir því sem nær líður jólum.

En hver eru vinsælustu trén?

„Það er helmingur Normannsþinur og helmingur íslensku trén. Stafafura þá helst af þessum íslensku og það er eiginlega vaxandi, þessi íslensku tré. Þau eru svona hægt og rólega að taka fram úr,“ sagði Sveinn.

Aðdáendur stafafurunnar gripu þó margir í tómt í kvöld þar sem sending af trjánum komst ekki til Reykjavíkur í tæka tíð vegna veðurs. Vegum hefur víða verið lokað á landinu í dag en gular viðvaranir eru í gildi um stærstan hluta landsins. Öxnadalsheiði, Víkurskarði og hringveginum í Öræfum hefur til að mynda öllum verið lokað vegna veðurs.

„Já, við lentum í smá vandræðum með stafafuruna tímabundið. Sendingin sem átti að koma í dag hún er eiginlega veðurteppt. Það er búið að hlaða bílinn en hann á eftir að komast af stað vegna veðurs.“

Þannig að það er nóg til en hún á bara eftir að koma í bæinn?

„Já, við tökum bara niður fólk á lista og hringjum þegar þetta kemur,“ sagði Sveinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×