Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍR 93-70 | Keflvíkingar hringdu inn jólin með öruggum sigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. desember 2019 20:30 Hörður Axel og félagar fara brosandi í jólafríið. vísir/daníel Keflavík vann afar öruggan sigur á ÍR, 93-70, þegar liðin mættust í 11. umferð Domino's deildar karla í kvöld. Keflvíkingar voru yfir allan tímann og sigur þeirra var aldrei í hættu. Reggie Dupree gaf tóninn með því að skora fyrstu ellefu stig Keflavíkur. Heimamenn voru miklu sterkari í upphafi leiks og komust í 19-2. Keflavík var með yfirhöndina í 1. leikhluta og var tíu stigum yfir af honum loknum, 32-22. ÍR skoraði fyrstu fjögur stig 2. leikhluta og minnkaði muninn í sex stig, 32-26. Keflavík svaraði með 7-0 kafla og náði aftur undirtökunum. ÍR-ingar skoruðu ekki síðustu sex mínúturnar í 2. leikhluta og voru 18 stigum undir að honum loknum, 46-28. ÍR spilaði betri vörn í 3. leikhluta og lét Keflavík hafa meira fyrir hlutunum. Breiðhyltingum gekk samt illa að minnka muninn og náðu honum aldrei í minna en tólf stig. Magnús Már Traustason skoraði síðustu fjögur stig 3. leikhluta og Keflavík leiddi með 16 stigum, 62-46, að honum loknum. Í 4. leikhluta dró enn í sundur með liðunum og Keflvíkingar unnu á endanum öruggan sigur, 93-70. Góður sigur sem kórónaði flottan fyrri hluta tímabilsins hjá Keflavík.Af hverju vann Keflavík? Keflvíkingar jörðuðu ÍR-inga undir körfunni, skoruðu 42 stig gegn 34 inni í teig og unnu frákastabaráttuna, 26-32. Þá létu heimamenn boltann ganga vel og voru með 28 stoðsendingar í leiknum. ÍR-ingar settu Keflvíkinga aldrei undir neina pressu og áhlaup þeirra voru máttlítil.Hverjir stóðu upp úr? Milka skilaði glæsilegri tölfræðilínu; 16 stigum, 14 fráköstum og 14 stoðsendingum. Hörður Axel Vilhjálmsson daðraði einnig við þrefalda tvennu; var með átta stig, tíu fráköst og átta stoðsendingar. Ágúst Orrason var stigahæstur Keflvíkinga með 23 stig. Fyrir leikinn í kvöld var hann aðeins með 1,8 stig að meðaltali í leik. Eins og áður sagði gaf Reggie tóninn fyrir Keflavík og skoraði 13 stig, öll í fyrri hálfleik. Auk þess spilaði hann góða vörn á Evan Singletary sem náði sér engan veginn á strik hjá ÍR. Collin Pryor var stigahæstur ÍR-inga með 19 stig. Danero Thomas átti einnig ágætan leik.Hvað gekk illa? ÍR-ingar voru ólíkir sjálfum sér í vörninni og Keflvíkingar fengu að gera það sem þeir vildu. Sóknin var stirð og gestirnir áttu á löngum köflum erfitt með að skora. Tveir stigahæstu leikmenn ÍR í vetur, Singletary og Georgi Boyanov, hefðu þurft að skila meiru en þeir gerðu. Þeir hafa sjaldan leikið jafn illa á tímabilinu og þeir gerðu í kvöld.Hvað gerist næst? Liðin eru komin í jólafrí. Fyrsti leikur ÍR á nýju ári er einnig í Reykjanesbæ, gegn Njarðvík sunnudaginn 5. janúar. Degi síðar tekur Keflavík á móti Tindastóli. Hjalti vildi vera með einn sigur í viðbót.vísir/daníel Hjalti: Aðeins undir markmiðinu Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður eftir leikinn, bæði með úrslitin og frammistöðu sinna manna. „Þetta liðssigur, margir lögðu í púkkið og þetta var bara vel gert, bæði í vörn og sókn,“ sagði Hjalti eftir leik. Keflavík byrjaði leikinn af miklum krafti, komst í 19-2 og leiddi allan tímann. „Þeir minnkuðu þetta allt í einu í sex stig en þá gáfum við aftur í. Mér fannst við betri í þessum leik,“ sagði Hjalti. Hann kvaðst ánægður með frammistöðu Keflvíkinga í heildina. „Það var gott flæði í sókninni og við vorum fastir fyrir í vörninni. Uppleggið gekk upp,“ sagði Hjalti. Keflavík fer í jólafríið með 16 stig af 22 mögulegum. „Þetta er flott. Aðeins undir markmiðinu en öðru leyti bara jákvætt,“ sagði Hjalti en að hans sögn stefndu Keflvíkingar á að vinna níu leiki fyrir áramót. Borche var langt frá því að vera sáttur með frammistöðu sinna manna.vísir/daníel Borche: Vorum linir í vörninni „Margt fór úrskeiðis í kvöld. Við virtust vera tilbúnir fyrir leikinn en ekki þegar hann hófst. Leikáætlunin var góð en við framkvæmdum hana ekki,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR, eftir tapið fyrir Keflavík í kvöld. „Við klikkuðum á fyrstu sex skotunum okkar og urðum stressaðir. Við vorum ekki nógu ákveðnir í sókninni og linir í vörninni.“ ÍR minnkaði muninn í sex stig í 2. leikhluta en nær komust Breiðhyltingar ekki. „Við hleyptum þeim aftur á skrið og í hálfleik var munurinn 18 stig. Við ætluðum að reyna að minnka muninn niður í tíu stig fyrir lokaleikhlutann og byrja hann vel. En of margir leikmenn voru komnir í jólafrí,“ sagði Borche. „Evan [Singletary] átti ekki góðan leik, Georgi [Boyanov] var ekki með, Danero [Thomas] reyndi og átti ágætis leik en það var ekki nóg. Ég þurfti meira framlag frá mörgum leikmönnum.“ Borche segir að ÍR-ingar þurfi að leggjast yfir leikinn og fara yfir það sem miður fór. „Við þurfum endurskipuleggja okkur í jólafríinu og gera miklu betur. Þetta er allt annað lið en spilaði gegn Tindastóli í síðustu umferð. Við þurfum að læra af þessum leik,“ sagði Borche. Dominos-deild karla