Innlent

Slökkviliðið braut gegn stjórnsýslulögum

Samúel Karl Ólason skrifar
Umræddur slökkviliðsmaður lagði fram kvörtun vegna þess að upplýsingar sem komu fram í viðtali hans við utanaðkomandi sálfræðing voru notaðar sem gögn í málinu og þeirri ákvörðun varðandi það hvort veita ætti honum áminningu eða segja upp störfum.
Umræddur slökkviliðsmaður lagði fram kvörtun vegna þess að upplýsingar sem komu fram í viðtali hans við utanaðkomandi sálfræðing voru notaðar sem gögn í málinu og þeirri ákvörðun varðandi það hvort veita ætti honum áminningu eða segja upp störfum. Vísir/vilhelm

Umboðsmaður Alþingis segir yfirmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hafa brotið gegn stjórnsýslulögum þegar slökkviliðsmanni var veitt formlegt tiltal í starfi, eins og það var kallað. Var það vegna tiltekinna samskipta við undirmann hans. Umræddur slökkviliðsmaður lagði fram kvörtun vegna þess að upplýsingar sem komu fram í viðtali hans við utanaðkomandi sálfræðing voru notaðar sem gögn í málinu og þeirri ákvörðun varðandi það hvort veita ætti honum áminningu eða segja upp störfum.

Honum hafi ekki verið tilkynnt að svo yrði farið með samtal hans við sálfræðinginn.

Í áliti umboðsmanns segir að meðferð málsins hafi ekki verið í samræmi við 14. grein stjórnsýslulaga.



„Sú niðurstaða byggðist á því að X hefði ekki sýnt fram á að A hefði verið tilkynnt með nægilega skýrum og ótvíræðum hætti af hálfu stjórnvaldsins, áður en hann mætti í viðtal hjá sálfræðingi, að málið hefði á þeim tíma verið lagt í farveg stjórnsýslumáls þar sem til greina kæmi að áminna hann eða segja upp störfum og að sálfræðingurinn hefði það hlutverk að rannsaka málið á þeim grundvelli.“

Umboðsmaður segir einnig að slökkviliðið hafi ekki leyst með réttum hætti úr erindi mannsins sem óskaði eftir endurskoðun á málinu.

Í álitinu segir enn fremur að það sé á ábyrgð tiltekinna stjórnvalda að tryggja að einkaaðili sem komi að málum sem þessum þekki viðeigandi reglur sem fylgja ber við meðferð gegna málanna.

„Sérstök álitamál gætu komið upp í því sambandi þegar viðkomandi sérfræðingur hefði vegna þess fagsviðs sem hann starfaði á sérstakar trúnaðar- og þagnarskyldur gagnvart þeim einstaklingum sem hann fjallaði um. Stjórnvaldinu hefði borið að gæta sérstaklega að tilteknum atriðum í þeim aðstæðum sem uppi voru í málinu þar sem sálfræðingurinn tilheyrði stétt heilbrigðisstarfsmanna sem alla jafna hvíldu trúnaðarskyldur á gagnvart skjólstæðingum sínum.“

Afrit af áliti umboðsmanns var sent til landlæknis „í ljósi þeirra álitaefna sem þar var fjallað um og vörðuðu aðkomu heilbrigðisstarfsmanna að stjórnsýslumálum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×