Lífið

Vinnur í sambandinu við sjálfa sig og Guð

Sylvía Hall skrifar
Demi Lovato ætlar að njóta þess að vera einhleyp.
Demi Lovato ætlar að njóta þess að vera einhleyp. Vísir/Getty

Söng- og leikkonan Demi Lovato og Austin Wilson eru hætt saman eftir nokkurra mánaða samband. Þá hefur söngkonan fjarlægt myndir af þeim saman af Instagram-síðu sinni.

Samkvæmt heimildarmanni People er Lovato nú einungis að einbeita sér að sjálfri sér og vinnunni. Þá ætli hún að nýta þennan tíma til þess að styrkja samband sitt við Guð.

„Hún er spennt að sjá hvað næsti kafli árið 2020 mun færa henni.“

Lovato og Wilson höfðu verið vinir áður en ástarsamband þeirra hófst. Þau gerðu samband sitt opinbert í nóvember á samfélagsmiðlum og fóru í kjölfarið að sjást saman opinberlega.

Leikkonan situr þó ekki auðum höndum um þessar mundir. Hún er sögð vera að vinna að nýrri tónlist ásamt því að hafa nýlega lokið tökum á lokaþáttaröð sjónvarpsþáttanna Will & Grace.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×