Lífið

Talið að barnið sé þegar fætt

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Meghan og Harry í Lundúnum í mars síðastliðnum.
Meghan og Harry í Lundúnum í mars síðastliðnum. Getty/Karwai Tang
Breskir veðbankar hafa lokað fyrir veðmál um fæðingardag barns Meghan Markle og Harry Bretaprins, hertogahjónanna af Sussex, þar sem talið er að barnið sé þegar fætt.

Veðbankarnir Paddy Power og Coral skrúfuðu fyrir veðmál um barnið eftir að viðskiptavinir hófu að veðja á dagsetningar sem þegar voru liðnar. Þá hafi einnig færst í aukana að veðjað væri á að barnið yrði stúlka og skírð Ivy en nafnið er nú víða efst í veðbönkum.

Ef marka má veðbanka er einnig talið líklegt að barnið verði skírt Grace, Díana eða Alice. Þá eru drengjanöfnin Arthúr, Játvarður og Alexander talin vænlegust til vinnings.

Hertogahjónin hafa aldrei nefnt settan dag í tengslum við fæðingu barnsins heldur sögðu aðeins í tilkynningu að erfinginn væri væntanlegur í vor. Ýmislegt þykir nú benda til þess að Meghan hafi þegar fætt barnið en miðað hefur verið við apríl sem fæðingarmánuðinn frá því að þungunin var gerð opinber.

Harry stytti svo skyndilega ferð sína til Hollands síðasta föstudag og sneri heim til Bretlands, sem þótti renna stoðum undir það að barnið væri á leiðinni.

Hertogahjónin hafa þegar tilkynnt um að þau hyggist halda fæðingu barnsins út af fyrir sig fyrst um sinn og fagna í einrúmi. Væri barnið fætt myndu þau því ekki segja frá því strax.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.