Vilhelm Már nýr forstjóri Eimskips Andri Eysteinsson skrifar 16. janúar 2019 20:35 Vilhelm Már mun taka við starfinu 24. janúar næstkomandi. Eimskip
Vilhelm Már Þorsteinsson hefur verið ráðinn forstjóri Eimskips. Vilhelm sem undanfarin ár hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækja og fjárfestasviðs Íslandsbanka hefur störf 24. Janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. Vilhelm hefur starfað hjá Íslandsbanka í tuttugu ár, lengst af sem stjórnandi en einnig hefur hann setið í framkvæmdastjórn bankans. „Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt til að leiða Eimskip, sem er öflugt fyrirtæki í traustum rekstri. Þar bætist ég í góðan hóp starfsfólks og stjórnenda sem hafa mikla reynslu af flutningastarfsemi og ég hlakka til að starfa með. “ segir verðandi forstjóri Eimskips, Vilhelm Már Þorsteinsson meðal annars. Stjórnarformaður Eimskips, Baldvin Þorsteinsson segir að við ráðningu Vilhelms fái Eimskipafélagið öflugan stjórnanda sem sýnt hefur að hann kunni að leiða saman fólk til að vinna að settu marki og ná árangri. Starf forstjóra var auglýst í byrjun desember á síðasta ári og naut Eimskip ráðgjafar Hagvangs við ráðninguna. Einhugur var í stjórn Eimskipafélagsins um ráðninguna og væntir stjórn félagsins mikils af Vilhelm í starfi.
Vistaskipti Mest lesið Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Atvinnulíf Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð Neytendur EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Samstarf Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Búið að draga tennurnar úr jagúarnum Viðskipti innlent Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Fleiri fréttir Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Sjá meira