Sveitarstjórn frestaði ákvörðun um veglínu
Mikill titringur er meðal Vestfirðinga vegna yfirvofandi ákvörðunar hreppsnefndarinnar, en þar stendur valið milli ÞH-leiðar um Teigsskóg og R-leiðar yfir mynni Þorskafjarðar. Ráðamenn annarra sveitarfélaga á Vestfjörðum óttast að val á R-leiðinni þýði verulegar tafir á framkvæmdum og fóru því á fund með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í byrjun ársins og þangað mættu einnig fulltrúar Reykhólahrepps.
Oddvitinn, Ingimar Ingimarsson, hefur ekki leynt því að hann vilji R-leiðina og fyrir helgi samþykkti skipulagsnefnd hreppsins með tveimur atkvæðum gegn einu að mæla með því að hún yrði sett á aðalskipulag. Undirskriftalisti, sem afhentur var sveitarstjóra á mánudag, sýnir hins vegar mikla andstöðu innan hreppsins gegn R-leiðinni en til stóð að sveitarstjórnin afgreiddi málið á fundi síðdegis í dag.
Þeirri ákvörðun var hins vegar frestað og segir Tryggvi Harðarson sveitarstjóri ástæðuna þá að sveitarstjórnin vilji funda með samgönguráðherra áður. Stefnt er að því að sá fundur verði á mánudag og að sveitarstjórn taki svo sína ákvörðun næstkomandi þriðjudag.
Tengdar fréttir
Oddvitinn telur sterkari rök fyrir stórbrú yfir mynni Þorskafjarðar
Oddviti Reykhólahrepps telur sterkari rök fyrir því að brúa mynni Þorskafjarðar fremur en að leggja Vestfjarðaveg um Teigsskóg.
Afhentu undirskriftir gegn R-leið um Reykhólahrepp
Sveitarstjóra Reykhólahrepps var í morgun afhentur undirskriftalisti 95 einstaklinga þar sem mótmælt er að svokölluð R-leið verði valin fyrir framtíðarvegstæði Vestfjarðavegar. Aðstandendur undirskriftanna telja að meirihluti íbúa hreppsins sé andvígur R-leiðinni.
Óvissa um fjárveitingu í aðra leið en Teigsskóg
Vegamálastjóri segir að Reykhólaleið sé ófjármögnuð. Ákvörðun um hana seinki framkvæmdum við Vestfjarðaveg um tvö til þrjú ár.
Uggandi vegna yfirvofandi ákvörðunar Reykhólahrepps
Ólga ríkir á Vestfjörðum vegna yfirvofandi ákvörðunar Reykhólahrepps um að velja stórbrú yfir Þorskafjörð í stað Teigsskógar sem veglínu Vestfjarðavegar.
R-leið um Reykhóla féll á umferðaröryggismati
Svokölluð R-leið, með stórbrú þvert yfir Þorskafjörð, sem sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur stefnt að, féll á nýju umferðaröryggismati og þyrfti fjögurra milljarða króna kostnaðarauka til að hún teldist hæf til að bera Vestfjarðaumferðina.
Ráðherra segir vel hægt að leggja veginn um Teigsskóg
Nýr samgönguráðherra segist enn þeirrar skoðunar, eftir vettvangskönnun, að skynsamt sé að leggja Vestfjarðaveg um Teigsskóg en kveðst þó reiðubúinn að skoða aðra valkosti.
Bændur gegn brú yfir Þorskafjörð og segja að bújörðum yrði fórnað
Stórbrú þvert yfir mynni Þorskafjarðar í stað vegar um Teigsskóg mætir harðri andstöðu eigenda fjögurra bújarða í Reykhólasveit. Þeir segja sorglegt að orðið sáttaleið sé notað um þessa tillögu.
Oddviti segir Vegagerðina hafa fengið rauða spjaldið
Oddviti Reykhólahrepps segir Vegagerðina sjálfa falla á umferðaröryggisprófi. Tilefnið er sú niðurstaða Vegagerðarinnar að svokölluð R-leið um Reykhóla standist ekki umferðaröryggismat.
Fjárveitingar miða við leiðarval um Teigsskóg
Fjárveitingar í samgönguáætlun til Vestfjarðavegar miða við leið um Teigsskóg, sem er fullfjármögnuð, og að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Ákvörðun um aðra leið er sögð þýða margra ára töf.