Miedema sló markametið þegar Hollendingar tryggðu sér farseðilinn í 16-liða úrslit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. júní 2019 14:45 Miedema sló markamet hollenska landsliðsins í sigrinum á Kamerún. visir/getty Holland er komið áfram í 16-liða úrslit heimsmeistaramóts kvenna eftir sigur á Kamerún, 3-1, í E-riðil í Valenciennes í dag. Evrópumeistararnir hafa unnið báða leiki sína á HM. Þeir mæta Kanada í lokaumferð riðlakeppninnar á fimmtudaginn. Markamaskínan Vivianne Miedema skoraði tvö mörk í dag og er orðin markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi með 60 mörk þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára.With that strike, @VivianneMiedema becomes the all-time top scorer for @oranjevrouwen, with 60 goals. She's 22.#NEDCMR | #FIFAWWCpic.twitter.com/ddc5WdW98h — FIFA Women's World Cup (@FIFAWWC) June 15, 2019 Miedema kom Hollandi yfir á 41. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Shanice van de Sanden. Aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Gabrielle Onguéné fyrir Kamerún og staðan var 1-1 í hálfleik. Aðeins tvær mínútur voru liðnar af seinni hálfleik þegar Dominique Bloodworth kom Hollandi aftur yfir með skoti af stuttu færi. Þegar fimm mínútur voru til leiksloka gulltryggði Miedema sigur Hollendinga þegar hún skoraði með föstu skoti sem Annette Ngo Ndom, í marki Kamerún, réði ekki við. Lokatölur 3-1, Hollandi í vil. Kamerún hefur tapað báðum leikjum sínum á HM og er í neðsta sæti E-riðils. Liðið mætir Nýja-Sjálandi á fimmtudaginn. HM 2019 í Frakklandi
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti