Körfubolti

Fjórtándi sigur Vals í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helena skilaði 26 framlagsstigum gegn KR.
Helena skilaði 26 framlagsstigum gegn KR. vísir/vilhelm
Valur vann sinn fjórtánda sigur í röð í Domino's deild kvenna þegar liðið lagði KR að velli, 67-98, í DHL-höllinni í dag.

Heather Butler skoraði 23 stig fyrir Valskonur og Helena Sverrisdóttir var með 16 stig, sjö fráköst og átta stoðsendingar.

Kiana Johnson skoraði 14 stig fyrir KR sem er í 3. sæti deildarinnar.

Keflvíkingar gerðu góða ferð í Borgarnesið og unnu 22 stiga sigur á Skallagrími, 70-92. Borgnesingar hafa tapað sex leikjum í röð.

Botnlið Breiðabliks vann sinn annan leik í röð þegar það bar sigurorð af Haukum, 70-86, á Ásvöllum.

Ivory Crawford skoraði 26 stig fyrir Blika og tók tólf fráköst. Sanja Orazovic skoraði 18 stig og tók 16 fráköst.

Rósa Björk Pétursdóttir skoraði 26 stig fyrir Hauka sem eru í 6. sæti deildarinnar.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×