Skoðun

Fortíðarþrá

Ólöf Skaftadóttir skrifar
„Ekki spila með framtíðina okkar,“ eru skilaboð 272 ungmenna sem keyptu auglýsingu í vikunni til stuðnings áframhaldandi aðild Íslands að EES-samningnum sem af óskiljanlegum ástæðum er víða talaður niður um þessar mundir. Svo mjög, að þessum hópi ungs fólks blöskrar.

Hópurinn segir umræðu um EES-samninginn undanfarið hafa verið knúna áfram af ósannindum, nú síðast um þriðja orkupakkann. Þau segjast draga lærdóm af aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um úrsögn Breta úr ESB og forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, að ungt fólk hafi sofið á verðinum. Afleiðingarnar blasi við: Brexit og Trump. Þess vegna láti þau í sér heyra nú.

Áhugaverða dæmisögu í þessu samhengi ritaði Hilmar Þór Björnsson arkitekt, fyrir stuttu. Umfjöllunarefnið var hvernig EES-samningurinn breytti starfsumhverfi arkitekta. Þar segir Hilmar frá þeim veruleika sem blasti við þegar hann kom heim úr námi, ungur að árum. Á níunda áratugnum hafi verið hér starfandi örfáar sjálfstæðar arkitektastofur, við hlið ríkisteiknistofanna þriggja; teiknistofu Húsnæðismálastofnunar, Teiknistofu landbúnaðarins og teiknistofu Húsameistara ríkisins.

Þessar teiknistofur hins opinbera niðurgreiddu arkitektateikningar og skekktu samkeppni, svo ungir arkitektar sem vildu hasla sér völl um 1980 áttu erfitt uppdráttar. Arkitekt sem ekki laut höfði fyrir húsameistara ríkisins átti í grunninn enga möguleika.

Þær örfáu teiknistofur sem þó voru sjálfstæðar tengdust flestar, ef ekk i allar, valdablokkum; flestar Framsókn og Sjálfstæðisflokki, embættis- og stjórnmálamönnum. Tengsl og klíka voru forsenda þess að reka teiknistofu. Valdamenn og fylgitungl þjöppuðu sér saman og létu aðrar klíkur að mestu í friði með sitt. Svokölluð helmingaskipti.

Eftir að EES-samningurinn tók gildi 1994 breyttist allt, að sögn Hilmars. Skylda var að bjóða út verk á vegum hins opinbera. Klíkurnar misstu smám saman tökin á opinberum verkum. Nokkrum árum eftir gildistöku samningsins voru ríkisteiknistofurnar lagðar niður. Byggingarlistin varð betri – markaðurinn sanngjarnari.

Þessi dæmisaga sýnir svart á hvítu ástæðu þess að afturhaldsöflin sakna gamla tímans. Þegar þau deildu og drottnuðu og réðu öllu um það hverjir fengu stóru dílana, hvort sem um var að ræða vöru eða þjónustu.

Framtak hópsins sem fylkti sér á opnu Fréttablaðsins er mikilvægt. Stærstur hluti lífsgæða sem við teljum sjálfsögð er tilkominn vegna samskipta við umheiminn. Fátt hefur skipt meira máli í því en EES. Ekki þarf annað en að líta í kringum sig til að sjá það, hvort sem um ræðir úrval í matvöruverslunum eða snjallsímann í lófanum.

Eitt er ljóst. Fortíðarþrá afturhaldsaflanna snýst um eitthvað allt annað en hagsmuni heildarinnar. Það má hins vegar ekki gleyma því að ungur arkitekt í sömu sporum í dag myndi einfaldlega kjósa með fótunum.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×