Lífið

Kendall Jenner hæst launaða fyrirsætan annað árið í röð

Sylvía Hall skrifar
Jenner er 23 ára gömul.
Jenner er 23 ára gömul. Vísir/Getty
Fyrirsætan og Kardashian systirin Kendall Jenner er launahæsta fyrirsæta heimsins annað árið í röð samkvæmt tekjulista Forbes með tæplega 23 milljónir Bandaríkjadala í árstekjur sem samsvarar hátt í þremur milljörðum íslenskra króna.

Jenner er næst yngst Kardashian systra en hún er 23 ára gömul. Hún hóf fyrirsætuferil sinn árið árið 2009, þá 14 ára gömul, og er í dag ein vinsælasta fyrirsæta heims með samninga við stórfyrirtæki á borð við AdidasEstée Lauder og Calvin Klein. Næstar í röðinni voru fyrirsæturnar Karlie KlossChrissy Teigen og Rosie Huntington Whitely.

Þrátt fyrir mikla velgengni sagði Jenner í viðtali á síðasta ári að hún tæki ekki að sér hvaða verkefni sem er og veldi þau af mikilli kostgæfni. Ummæli Jenner féllu í grýttan jarðveg hjá mörgum innan fyrirsætusamfélagsins sem bentu á að fáir hefðu átt jafn auðvelda leið inn í bransann. Hún baðst í kjölfarið afsökunar á orðum sínum sem hún sagði hafa verið tekin úr samhengi. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.