Lífið

Streisand og Grande sungu saman diskó klassík

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ariana Grande og Barbra Streisand tóku lagið saman í gær
Ariana Grande og Barbra Streisand tóku lagið saman í gær Ariana Grande/Instagram
Ariana Grande, söngkona, steig á svið með Barbru Streisand á þriðjudagskvöld á tónleikum hjá Streisand og tóku þær saman lagið.

Þær fluttu lagið No More Tears (Enough is Enough) lag Streisand og Donnu Summer. Grande og Streisand klæddust báðar svörtu og sungu diskó lagið af innlifun.



Eftir að þær luku flutningnum knúsuðust þær og Grande sagðist ætla fara og leggjast út af.



Á Twitter lýsti Grande upplifun sinni og sagði: „Halló, ég skelf og græt. Takk @BarbraStreisand. Ég er orðlaus, bless.“



Streisand þakkaði Grande sömuleiðis á samfélagsmiðlum og sagði „leyndarmálinu nú vera uppljóstrað.“

 
 
 
View this post on Instagram
Part 1 #arianagrande #arianagrandevideos #arianagrandelive

A post shared by arianagrande (@ari_cat_26_06) on Aug 7, 2019 at 4:56am PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.